Greining býst við auknu atvinnuleysi á næstu mánuðum 6. október 2010 10:03
Ekki er við öðru að búast en að atvinnuleysi samkvæmt skráningu á vinnumiðlunum haldi áfram að aukast á næstu mánuðum, þá einna helst vegna árstíðarsveiflu. Yfirleitt versnar atvinnuástandið með haustinu en á frá september til desember í fyrra jókst það úr 7,2% í 8,2% og jókst svo enn frekar í janúar þegar það fór upp í 8,8%. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að samkvæmt nýrri spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem var birt fyrr í vikunni reiknar sjóðurinn með að atvinnuleysi komi til með að verða 8,6% í ár en fari svo niður í 8,4% á næsta ári. „Að okkar mati gætir of mikillar svartsýni í spá þeirra enda yrði atvinnuleysi þá að vera að meðaltali 9% á mánuði þessa fjóra síðustu mánuði ársins ef hún ætti að rætast. Engu að síður má gera ráð fyrir að atvinnuleysi komi til með að hækka nokkuð hratt á næstu mánuðum og nái hámarki á fyrstu mánuðum næsta árs," segir í Morgunkorninu. Hópuppsagnir nú í september eru töluvert færri en á sama tíma í fyrra þegar alls 87 manns var sagt upp störfum í slíkum uppsögnum, og er þessi þróun í takti við það sem verið hefur á árinu. Þannig hefur verið heldur minna um hópuppsagnir framan af þessu ári en í fyrra, en alls hafa Vinnumálastofnun borist 22 tilkynningar um hópuppsagnir á árinu þar sem sagt hefur verið upp 515 manns. Á sama tímabili í fyrra höfðu borist alls 43 tilkynningar sem náðu til 1.454 starfsmanna. „Ekki hægt að slá því föstu að þessari uppsagnahrinu sé lokið. Má hér nefna að sú hætta er fyrir hendi að seinkunin sem hefur orðið á endurskipulagningu skulda margra fyrirtækja, og hefur þá jafnvel tímabundið komið í veg fyrir að mörg þeirra hafi farið í þrot án þess að staða þeirra hafi í raun breyst til hins betra, hafi einnig tímabundið komið í veg fyrir að mörg þeirra hafa ráðist í frekari uppsagnir," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira