Enn dæmir héraðsdómur gengistryggingu ólögmæta 30. apríl 2010 13:38
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur kveðið upp dóm í máli Nýja Landsbankans (NBI) gegn Þráni ehf. þar sem fram kemur að dómurinn telur gengistryggingu á láni ólögmæta. Sjálft málið gekk út á kröfu bankans á að bú Þráins ehf. yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Því hafnði dómurinn. Í beiðni kemur fram að NBI telur sig eiga kröfur að höfuðstól tæplega 860 milljón krónur... á hendur Þráni ehf.. Er vísað til fimm lánssamninga sem gerðir hafi verið á árunum 2006 og 2007. Eru þeir sagðir hafa verið upphaflega að jafnvirði 357.5 milljónir króna, en í ýmsum myntum. Að beiðni NBI var reynt að kyrrsetja eignir Þráins ehf. til tryggingar kröfunni hinn 9. desember 2009, en gerðinni var lokið sem árangurslausri. Í dóminum segir að Þráinn ehf. telur að óheimilt sé að tengja lán í íslenskum krónum við breytingar á gengi erlendra gjaldmiðla. Líta verði til þess að hann hafi fengið afhentar íslenskar krónur. NBI byrji á öfugum enda í innheimtu sinni. Hann ætti fyrst að fá skorið úr um lögmæti þeirra lánasamninga sem um ræðir. NBI beri sönnunarbyrðina fyrir því að lánin hafi verið veitt í erlendum gjaldmiðli. Áður en sú sönnun sé færð fram sé ekki tímabært að kveða upp gjaldþrotaúrskurð. Dómari tekur undir sjónarmið Þráins ehf. um lögmæti gengistryggingarinnar og vísar þar í annan dóm sem nýlega féll í Héraðsdómi og nú er til meðferðar í Hæstarétti. Í dóminum segir: „ Að þessu athuguðu verður að miða við að upphaflegur höfuðstóll skulda varnaraðila hafi verið 357.500.000 krónur og að hann hafi ekki hækkað. Varnaraðili telur verðmæti eigna sinna, sem sóknaraðili eigi veðrétt í, nema rúmlega 600 milljónum króna. Þá segir hann á yfirlitsblaði er hann lagði fram að sóknaraðili hafi metið verðmæti eignanna 474 milljónir króna. Þessu var ekki mótmælt í málflutningi. Ætla verður að krafa sóknaraðila hafi hækkað frá því að lánin voru veitt, en eins og málið er reifað hér fyrir dómi er ekki unnt að áætla með viðunandi nákvæmni heildarfjárhæð." Dómurinn hafnar sumsé gjaldþrotabeiðninni og gerir NBI jafnframt að greiða Þráini ehf. 300 þúsund í málskostnað.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira