Skuldaálag lækkar á Ísland en hækkar í Vestur Evrópu 5. nóvember 2010 11:04
Talsverð hækkun hefur verið á skuldatryggingaálagi á ríki í Vestur Evrópu á síðustu dögum. Á meðan hefur álagið á Ísland farið lækkandi. Greining Íslandabanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þannig stóð meðaláhættuálag til fimm ára á ríki Vestur Evrópu í 184 punktum í lok gærdagsins samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni en það stóð í rétt rúmum 150 punktum um miðjan októbermánuð. Hefur meðaltalið ekki verið jafn hátt síðan í júní síðastliðnum þegar það rauk upp í kjölfar mikillar hækkunar á álagi gríska ríkisins sem þá var komið yfir 1.100 punkta. Líkt og svo oft áður má rekja þessa breytingu nú fyrst og fremst til hækkunar á álagi írska ríkisins, því gríska og svo portúgalska enda hefur álagið á þessi ríki hækkað langmest í punktum talið af öllum ríkjum Vestur-Evrópu. Þannig stóð skuldatryggingaálagið á gríska ríkið í 852 punktum (8,52%) í lok dags í gær og hefur það ekki verið jafn hátt síðan um miðjan september síðastliðinn. Svipaða sögu er að segja um álagið á Portúgal en það stóð í 439 punktum í gær. Á hinn bóginn stóð álagið á Írland í 583 punktum í lok dags í gær og hefur álagið aldrei verið jafn hátt og nú. Sem kunnugt er stendur írska ríkið í ströngu vegna bankakerfisins þar í landi sem hefur haft veruleg áhrif á fjármál þess. Bendir þetta til þess að eftirmáli fjármálakreppunnar ætli að reynast Írlandi afar erfiður og langvinnur. Í lok dags í gær stóð skuldatryggingaálagið til fimm ára á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands í 273 punktum sem er í lægri kanti þess sem það hefur verið á þessu ári. Síðan um áramót hefur álagið farið lægst í 249 punkta sem átti sér stað í maí en hæst í 675 punkta sem gerðist í byrjun febrúar. Skuldatryggingaálagið á Ísland er þó enn hið fjórða hæsta af álagi þeirra ríkja Vestur Evrópu sem skuldatryggingar eru seldar fyrir og skipa þau þrjú lönd sem fjallað er um hér að ofan augljósa fyrsta til þriðja sætið í þessum samanburði. Skuldatryggingaálagið á Spán (233 punktar) er í fimmta sæti á þessum lista og svo í sjötta sæti kemur álagið á Ítalíu (182 punktar).
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira