Mikill fjörkippur á íbúðamarkaðinum í september 14. október 2010 11:28
Óvenju mikið var um að vera á íbúðamarkaði í september síðastliðnum miðað við það sem verið hefur verið síðustu misserin. Samtals var 347 kaupsamningum þinglýst í september síðastliðnum sem er aukning um 65% frá fyrri mánuði þegar 211 samningum var þinglýst. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þá séu þetta 50% fleiri samningar en í sama mánuði fyrir ári síðan þegar samtals 228 kaupsamningum var þinglýst. Heildarvelta þeirra samninga sem gerðir voru í september nam 9,8 milljörðum kr. sem nemur því að meðalupphæð á hvern kaupsamning hafi verið 28,3 milljarðar kr. Leita þarf allt aftur til mars 2008 til að finna mánuð þar sem fleiri samningar voru gerðir, en að meðaltali hafa verið gerðir 180 kaupsamningar í mánuði hverjum síðan hrunið skall á. Þá var einnig mikil velta á íbúðamarkaði fyrstu vikuna í október. Voru þá gerðir 84 kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu en í sömu viku í fyrra voru gerðir 54 samningar. Óhætt er því að segja að um mikinn viðsnúning er að ræða frá því sem áður var og haldi þessi þróun áfram næstu mánuði er ljóst að lífsmark virðist vera að kvikna á íbúðamarkaði á nýjan leik eftir mikinn dvala. Þessi aukna velta, auk þess sem nú hefur hægt á verðlækkunum íbúðarhúsnæðis, virðist benda til þess að íbúðamarkaðurinn sé nú kominn yfir það versta í þessari niðursveiflu. Engu að síður er veltan enn langt frá því sem áður var, en sumarið 2007 voru að meðaltali gerðir 1.000 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði í mánuði hverjum Meiri umsvif voru einnig hjá Íbúðalánasjóði í september síðastliðnum en síðustu mánuði, en heildarútlán sjóðsins í mánuðinum námu 3,8 milljörðum kr og voru þar af 1,9 milljarðar kr. vegna almennra lána. Útlán sjóðsins hafa ekki verið hærri í einum mánuði það sem af er þessu ári en samtals námu útlán á fyrstu níu mánuðum ársins rúmum 20 milljörðum kr. samanborið við 24 milljarða kr. á sama tímabili ársins 2009.
Mest lesið „Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Atvinnulíf 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Viðskipti innlent Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Atvinnulíf Miðeind festir kaup á Snöru Viðskipti innlent Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Samstarf Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Sjá meira