Viðskipti innlent

„Evrópusambandið er ekki korter í þrjú lausn“

Vilhjálmur Egilsson.
Vilhjálmur Egilsson.

„Maður hristir þetta ekki bara úr erminni," sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni þegar hann var spurður út í ummæli Ögmundar Jónasson dómsmálaráðherra, sem sagði í fréttum í gær að hann vildi að umsóknarferlið inn í ESB yrði klárað á tveimur mánuðum.

Vilhjálmur segir þetta óraunhæfar vætningar. Það væri að mörgu að huga.

„Evrópusambandið er ekki korter í þrjú lausn. Þetta er langtímaákvörðun," sagði Vilhjálmur í spjalli við þáttastjórnanda Sprengisands, Sigurjón M. Egilsson.

Vilhjálmur segir enga þörf á að flýta sér enda líklegra að menn geri mistök ætli þeir að taka ákvörðun í skyndi.

„Ef við klárum þetta á tveimur mánuðum þá erum við sennilega ekki að fara fá góðan samning," sagði Vilhjálmur svo.

Sprengisandur er á Bylgjunni núna en Ögmundur Jónasson mun einnig sitja fyrir svörum síðar í þættinum.


Tengdar fréttir

Vill ljúka aðildaviðræðum á tveimur mánuðum

Ögmundur Jónasson dóms-, mannréttindamála og samgönguráðherra vill ljúka samningaviðræðum Íslands við Evrópusambandið á tveimur mánuðum og bera niðurstöðuna síðan undir þjóðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×