Afkoma Íslandsbanka jákvæð um rúma átta milljarða 7. september 2010 14:00 Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Afkoma Íslandsbanka á fyrsta árshluta 2010 var samkvæmt könnuðum árshlutareikningi jákvæð um 8,3 milljarða króna og er tekjuskattur tímabilsins áætlaður 2.347 milljónir króna. Frá þessu er greint á heimasíðu bankans en eiginfjárhlutfall hans var 21,5% sem er talsvert hærra en það 16% lágmark sem Fjármálaeftirlitið hefur sett bankanum. Arðsemi eigin fjár var 17,1%. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka segir að rekstur bankans hafi gengið vel á fyrri helmingi ársins og verið nokkuð í takt við fyrri áætlanir. „Eiginfjárstaða bankans er afar sterk eða 21,5% sem er vel yfir 16% lágmarkskröfu Fjármálaeftirlitsins. Það er ljóst að bankinn hefur þannig allar forsendur til að koma í auknu mæli að fjármögnun atvinnulífsins á Íslandi." Birna bendir á að vissulega hafi réttaróvissa um lögmæti og vaxtakjör lána í erlendri mynt sett mark sitt á uppgjörsvinnu bankans og hefur Íslandsbanki gert úttekt á hugsanlegum áhrifum ólíkra niðurstaðna í því máli. Hún segir að sú úttekt hafi leitt í ljós ef öll lán í erlendri mynt verða dæmd ólögleg geti höggið á eiginfjárgrunn bankans orðið verulegt. „Verði það niðurstaðan mun Íslandsbanki eigi að síður vera með eiginfjárhlutfall yfir 12% sem er vel yfir lögbundnu lágmarki. Slík niðurstaða myndi þó skerða verulega möguleika bankans til að þjónusta heimili og fyrirtæki og veita fjármunum til fjárfestinga og þar með taka þátt í endurreisn atvinnulífsins."
Mest lesið Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Atvinnulíf Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Sjá meira
Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent
Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent