Viðskipti innlent

Verðmæti sjávarútvegsafurða 200 milljarðar í fyrra

Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða nam rúmum 200 milljörðum króna á síðasta ári og jókst um 10,9% frá fyrra ári. Er þar um að ræða samtölu útflutnings og birgðabreytinga sjávarafurða.

Þetta kemu fram í ritinu Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2009 sem birt hefur verið á vefsíðu Hagstofunnar.

Þar segir að framleiðslan mæld á föstu verði dróst hins vegar saman um 7,6%. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 208,6 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 21,8% en dróst saman í magni um 4%.

Árið 2009 voru flutt út 669 þúsund tonn samanborið við 697 þúsund tonn árið áður. Útflutt afurðaverðmæti allra flokka aflategunda jókst frá fyrra ári.

Líkt og undanfarin ár skiluðu frystar afurðir um helmingi útflutningsverðmætis. Af einstökum afurðum vóg verðmæti blautverkaðs saltfisks úr þorski mest, 16,4 milljarða króna. Af heildarútflutningi sjávarafurða fór 79% til Evrópska efnahagssvæðisins, 6,8% til Asíu og 4,9% til Norður-Ameríku.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×