ESA rannsakar ríkisstuðning við Sjóvá Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. september 2010 14:00
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hóf í dag formlega rannsókn á veitingu ríkisstyrks við endurfjármögnun tryggingafélagsins Sjóvár. Rannsóknin snýr að 11,6 milljarða króna eiginfjárframlagi íslenska ríkisins. Ríkisstyrkurinn kann að hafa verið veittur í andstöðu við lög að mati stofnunarinnar, samkvæmt því sem fram kemur á vef EFTA. Íslenska ríkið eignaðist 73 prósenta hlut í Sjóvá í kjölfar samninga um endurfjármögnun á félaginu árið 2009. Fyrir hlutaféð greiddi ríkið með skuldabréfum útgefnum af Landsvirkjun og fjárfestingabankanum Askar Capital metnum að verðmæti 11,6 milljarða króna, en bæði bréfin voru í eigu ríkisins. Skuldabréfin voru upphaflega seld eignarhaldsfélagi í eigu Glitnis í júlí 2009. Glitnir notaði síðan bréfin sem eiginfjárframlag við endurfjármögnun Sjóvár. Ríkið veitti Glitni 18 mánaða greiðslufrest og bar skuld Glitnis við ríkið enga vexti. Að auki átti Glitnir kost á að borga fyrir skuldabréfin með hlutum í Sjóvá, sem félagið nýtti sér í maí 2010. Það er frummat eftirlitsstofnunar EFTA að með þessum viðskiptum hafi íslenska ríkið leitt björgunaraðgerðir í þágu ógjaldfærs tryggingafélags. Í fréttatilkynningunni kemur fram að það hafi verið gert án þess að tilkynna það ESA líkt og lög mæli fyrir um. Fram til þessa hafi íslensk stjórnvöld haldið því fram að viðskiptin hafi verið gerð á markaðsforsendum og því hafi engrar tilkynningar verið þörf. ESA hafi þó efasemdir um að markaðsfjárfestar hefðu farið út í slíka fjárfestingu í júlí 2009. ESA tók mál þetta upp af eigin frumkvæði í kjölfar frétta í fjölmiðlum en síðar barst einnig kvörtun frá keppinauti Sjóvár.
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira