Fjárfestar áhugasamir um ríkisvíxla - stabbinn minnkar 14. júní 2010 10:51
Fjárfestar reyndust áhugasamir um ríkisvíxlaútboðið sem haldið var hjá Lánamálum ríkisins síðastliðinn föstudag. Þannig bárust alls 50 gild tilboð í ríkisvíxlaflokkinn RIKV 10 1015 að fjárhæð tæplega 31,3 milljarða kr. að nafnverði. Á morgun mun ríkisvíxlastabbinn minnka um 4,3 milljarða kr. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að ákveðið var að taka nærri tveimur þriðju hlutum tilboðanna sem nemur að fjárhæð 20 milljörðum kr. á 5,95% flötum vöxtum. Ríkissjóður má vel una miðað við þessa niðurstöðu, en vaxtakjör ríkissjóðs í útboðinu nú eru þau bestu frá því í maí í fyrra þegar vegnir meðalvextir voru 5,74%. Áhugavert er að bera meðalvexti í víxlaútboðum Lánamála saman við aðra skammtímaávöxtun á markaði. Til að mynda eru 3ja mánaða vextir á millibankamarkaði nú 7,2%, eða ríflega 1,2 prósentum hærri en vextirnir í víxlaútboðinu fyrir helgi. Millibankavextirnir hafa raunar oftar en ekki verið hærri en vextir í víxlaútboðum Lánamála undanfarna 18 mánuði. Á haustdögum í fyrra og á fyrstu mánuðum þessa árs voru þó vextir í víxlaútboðum og 3ja mán. millibankavextir nánast þeir sömu. Líklegt er að a.m.k. hluti útlendinganna sem mynda eigendahóp víxlanna telji sig hafa í fá önnur hús að venda til að ávaxta krónur sínar og kann það að vera skýring á stórum hluta þess munar sem lengst af hefur verið á vaxtakjörum víxla og innlána undanfarið. Hér þarf raunar einnig að hafa í huga, þegar verið er að bera saman 3ja mánaða millibankavexti og vexti á 4ja mánaða víxlum að í vaxtalækkunarferli, eins og nú stendur yfir, verður vaxtaróf á millibankamarkaði gjarnan niðurhallandi og því eðlilegt að vextir víxlanna séu að öðru jöfnu lítið eitt lægri. Á gjalddaga á morgun eru 24,3 miljarðar kr. af ríkisvíxlum og minnkar því heildarstabbi útistandandi ríkisvíxla úr rúmum 76,6 milljörðum kr. í rúma 72,3 milljarða kr. Ekki liggja fyrir upplýsingar þessa stundina um af hvaða tagi kaupendur ríkisvíxlanna voru síðastliðinn föstudag. „Teljum við þó afar líklegt eins og svo oft áður að erlendir aðilar hafi verið þar fyrirferðamiklir en þeir höfðu upphaflega keypt 65% af seldum bréfum í þeim víxlaflokki sem er á gjalddaga á morgun," segir í Morgunkorninu. „Samkvæmt Markaðsupplýsingum sem Lánamál sendu nýverið frá sér nam eignarhlutdeild erlendra aðila í ríkisvíxlum í lok apríl ríflega 69%. Í víxlaútboðinu í maí höfðu þeir keypt víxla fyrir 5,8 milljarða kr. að nafnverði, en alls voru þá seldir víxlar fyrir rúma 12,3 milljarða kr. Má því ætla að eignarhlutdeild þeirra af útstandandi ríkisvíxlum í lok maí hafi lækkað lítillega og farið niður í tæp 68%."
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira