Aðgerðir stjórnvalda miðast ekki við að hér býr vestræn þjóð 23. febrúar 2010 18:56
Hvorki sértækar né almennar aðgerðir stjórnvalda vegna skuldavanda heimilanna, virðast gera ráð fyrir því að hér búi vestræn þjóð með vestræn neysluviðmið. Fram kemur í skýrslu Kjartans Brodda Bragasonar fyrir Neytendasamtökin að allt að 30% heimila landsins séu í verulegum skuldavandræðum. Í skýrslu Seðlabankans um skuldastöðu heimilanna kom fram að hátt í áttatíu prósent þeirra séu með viðráðanlega greiðslubyrði. Í skýrslu Kjartans Brodda er sérstök athygli vakin á því hvað Seðlabankinn telji viðráðanlega greiðslubyrði. Tekin eru þrjú dæmi til skýringar: Tveggja manna heimili með 300 þúsund í ráðstöfunartekjur á mánuði, 120 þúsund í greiðslubyrði lána og 180 þúsund krónur til að lifa af telst með viðráðanlega greiðslubyrði. Það sama gildi hins vegar um sex manna heimili með sömu ráðstöfunartekjur og greiðslubyrði. Það er að segja; ekki er tekið tillit til fjölda fólks á heimilinu, þegar skuldavandinn er metinn. Hins vegar teljist einstæðingur með 650 þúsund krónur í ráðstöfunartekjur og 390 þúsund í afborganir vera með þunga greiðslubyrði. Þó hefur sá maður 260 þúsund krónur milli handanna á mánuði eftir afborganir lána. Erfitt er að sjá að þessar upplýsingar geti nýst til pólitískra ráðstafana, segir skýrsluhöfundur en gera má ráð fyrir að aðgerðir stjórnvalda í þágu skuldsettra heimila byggi að miklu leyti á greiningu Seðlabankans. Í skýrslunni segir að sértækar og almennar aðgerðir vegna skuldavanda landsmanna virðist ekki gera ráð fyrir að hér búi vestræn þjóð með vestræn neysluviðmið.
Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira