Alcan semur um framkvæmdir í Straumsvík 20. apríl 2010 15:04 Á myndinni eru frá vinstri: Sigurður Þór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alcan á Íslandi, Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, Karl Þráinsson, aðstoðarforstjóri Íslenskra aðalverktaka, Kristján Arinbjarnar, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Íslenskra aðalverktaka.
Alcan á Íslandi hf., sem er í eigu Rio Tinto Alcan, hefur samið við Íslenska aðalverktaka hf. um tilteknar verklegar framkvæmdir við fyrri áfanga straumhækkunarverkefnisins í Straumsvík. Er þetta fyrsti samningurinn um verklega framkvæmd þessa verkefnis.Í tilkynningu segir að straumhækkunarverkefnið í heild skiptist í tvo hluta. Fyrri hlutinn, sem er hafinn, miðar einkum að því að efla rekstraröryggi álversins og undirbúa straumhækkun, sem stefnt er að á síðari stigum og er megintilgangur seinni hluta verkefnisins.Fjárhæð samningsins við Íslenska aðalverktaka er 4,1 milljón Bandaríkjadala eða 526 milljónir króna. Allt að 70 starfsmenn fyrirtækisins munu starfa við þessar framkvæmdir, sem hefjast í þessum mánuði.Um er að ræða byggingarframkvæmdir við aðveitustöð í austurenda álverslóðarinnar sem lúta að tengivirki, rofavirkjum og afriðladeildum, auk þess sem leggja þarf neðanjarðartengingar milli rofavirkis og afriðladeilda.Í heild sinni felur fyrri hluti straumhækkunarverkefnisins í sér fjárfestingu fyrir liðlega 100 milljónir Bandaríkjadala og fellur um þriðjungur fjárhæðarinnar til á Íslandi.Í samningnum við Íslenska aðalverktaka er einnig kveðið á um frekari verkefni sem eru háð því að ákveðið verði að ráðast í seinni hluta verkefnisins, sjálfa straumhækkunina, sem felur í sér heildarfjárfestingu fyrir yfir 200 milljónir Bandaríkjadala til viðbótar við fyrri hlutann.„Við erum ánægð og stolt yfir því að standa að svo umfangsmiklum samningi, ekki síst á þessum erfiðu tímum í íslensku efnahagslífi. Verkefnið hefur umtalsverða þýðingu bæði fyrir Íslandi og álverið sjálft," segir Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi hf.
Mest lesið Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Sjá meira