Stefnt að frekari eignasölu hjá Íslandsbanka 4. júní 2010 11:22 Stefna Miðengis er að selja allar eignir sem félagið fær frá bankanum. Mynd/Vilhelm
Íslandsbanki hefur selt 49% hlut í Skeljungi til Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur, en hún er hluthafi í Skel Investments sem er eigandi 51% hlutar í Skeljungi. Miðengi, eignarhaldsfélag Íslandsbanka, hélt utanum hlutinn fyrir bankann. Samkvæmt heimildum Vísis.is er frekari tíðinda að vænta frá Miðengi í næstu viku. Stefna Miðengis er að selja allar eignir sem félagið fær frá bankanum, að því er segir á heimasíðu fyrirtækisins. Í kjölfar fjármálakreppunnar hafa mörg fyrirtæki fallið í faðm bankanna. Eignarhald þeirra á þessum fyrirtækjum þarf þó ekki að vera tilkomið vegna rekstrarerfiðleika. Í ljósi sölu Miðengis á hlut sínum í Skeljungi er áhugavert að skoða fyrirtækin sem það á hlut í. Miðengi á hluti í fleiri fyrirtækjum en hér eru nefnd. Miðengi á Steypustöðina að fullu og heldur um 33% hlut í 66° Norður. Eignarhluturinn er reyndar einungis í rekstrarlegri umsjón hjá Miðengi en hann er í eigu Íslandsbanka. Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi er aðaleigandi fyrirtækisins. Einnig á Miðengi 37% hlut í Capa Invest, sem aftur á 26% hlut í móðurfélagi Capacent. Eignarhluturinn er ekki í söluferli, segir á heimasíðu Miðengis. Miðengi á 48% hlut í GLB Glacier Renable. Eina eign sjóðsins er 40% eignarhlutur í Geysi Green Energy. Eignarhluturinn í GLB Glacier er ekki í söluferli. Vinna við fjárhagslega endurskipulagningu GGE stendur yfir, segir á heimasíðunni. Miðengi á 20% hlut í Auðkenni, sem býður upp á lausnir í öryggismálum í rafrænum viðskiptum, ásamt öðrum fjármálafyrirtækjum og Símanum. Og 24% hlut í Median-rafrænni miðlun hf. Þá á fyrirtækið að fullu fasteignina sem leikskólinn Sjáland í Garðabæ er starfræktur í. Miðengi á einnig Laugarakur ehf. sem á og rekur íbúðarhúsnæði á Arnarneshæð. Og Rivilus ehf. sem á Lækjargötu 10-12 (útibú Íslandsbanka í Lækjargötu) ásamt Vonarstræti 4b. Miðengi á 38% hlut í Eignarhaldsfélaginu Fasteign, sem það á ásamt opinberum aðilum, og heldur utanum fasteignir þeirra. Listi yfir eignir Miðengis.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira