Kaupandi Skeljungs maki stjórnarformannsins 4. júní 2010 14:26 Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir olíudrottning.
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, sem tilkynnt var um að hafi keypt 49% hlut í Skeljungi í dag, er aðeins 33 ára gömul en áður var hún framkvæmdarstjóri fjárstýringu Straums-Burðaráss. Maki Svanhildar er Guðmundur Þórðarsonar sem er stjórnarformaður Skeljungs. Sjálf er Svanhildur stjórnarmaður í Skeljungi. Þau hafa áður sinnt viðskiptum í Danmörku með Birgi Þór Bieltvedt fjárfesti. Þau keyptu 51% hlut í Skeljungi ásamt Birgi Þór í lok 2008. Birgir Þór fjárfesti meðal annars með Baugi Group í Magasin Du Nord í Danmörku fyrir um sex árum síðan. Þau þrjú hafa víða komið við í íslensku viðskiptalífi. Svanhildur Nanna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræðum.Hún er fædd árið 1977. Hún bauð sig fram í stjórn Byr síðasta sumar ásamt hópi fólks þegar mikil barátta var um yfirráð yfir sparisjóðnum. Tveir listar voru í framboði og fékk hennar listi 48% atkvæða. Þeir sem réðu í Byr héldu velli. Svanhildur hefur yfir 10 ára reynslu af störfum innan fjármálageirans. Á árunum 1999-2002 starfaði hún hjá FBA (síðar Íslandsbanka-FBA), fyrst á sviði markaðsviðskipta og síðar tók hún við starfi forstöðumanns netviðskipta bankans. Á árunum 2002-´05 starfaði Svanhildur hjá KB banka og gegndi starfi forstöðumanns fjármögnunar. Árið 2005 gekk hún til liðs við Straum-Burðarás og tók við starfi framkvæmdastjóra fjárstýringar sem hún gegndi fram á síðari hluta árs 2007. Maðurinn hennar Guðmundur var framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Straums-Burðaráss fjárfestingabanka til ársins 2007. Þá keypti hann ásamt Birgi Þór ráðandi hlut í danska félaginu Property Group A/S. Markmið félagsins var að afla fjárfestingartækifæra fyrir fjárfesta í fasteignaviðskiptum. Markmið þess var einnig að kaupa og selja fasteignir, en markaðssvæði þess var í Skandinavíu og í nærliggjandi löndum, einkum Þýskalandi og í Eystrasaltslöndum. Árið 2008 keyptu þeir saman 50% hlutafjár í danska tískuhúsinu Metropol. Birgir Þór er öllu þekktari en Guðmundur og Svanhildur Nanna. Hann hafði yfirumsjón með uppbyggingu Domino's Pizza á Íslandi frá 1993 og flutti svo til Danmerkur árið 1997 til að endurtaka leikinn. Árið 2004 tók hann þátt í yfirtöku á hinu danska Magasin Du Nord ásamt Straumi Burðarás fjárfestingabanka og Baugi Group. Nýjustu tíðindin af Birgi Þór er að hann var ráðinn til að stýra Domino's í þýskalandi.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira