Deutsche Bank með þrjá menn í stjórn Actavis Þorbjörn Þórðarson skrifar 14. október 2010 12:13 Claudio Albrecht, forstjóri Actavis, á skrifstofu sinni í skrifstofubyggingu Actavis við Dalshraun í Hafnarfirði. Albrecht er 51 árs, með doktorspróf í lögfræði. Mynd/Vilhelm
Þýski bankinn Deutsche Bank verður með þrjá stjórnarmenn í nýrri stjórn Actavis og Björgólfur Thor Björgólfsson tvo. Þá verða íslensku bankarnir með einn fulltrúa.Claudio Albrecht, forstjóri Actavis, sagði í viðtali við fréttastofu í gærkvöldi að rekstrarárið 2010 yrði besta ár í sögu Actavis. Þá sagði hann að fyrirtækið myndi á næstunni ráða 60-100 nýja starfsmenn hér á Íslandi. Fyrirtækið tók högg vegna málaferla sem höfðuð voru í Bandaríkjunum, en það virðist þó ekki hafa staðið í vegi fyrir afar jákvæðgri afkomu. Málunum er öllum lokið með samkomulagi við stefnendur.Fjárhagslegri endurskipulagningu Actavis er nú lokið og hefur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gefið samþykki sitt fyrir aðkomu Deutsche Bank að félaginu, en Deutsche Bank sendi framkvæmdastjórn ESB beiðni hinn 18. ágúst síðastliðinn á grundvelli tilskipunar um samruna og óskaði eftir samþykki Evrópusambandsins vegna samkeppnisréttarlegra sjónarmiða. Það hefur nú verið veitt.Skipun nýrrar stjórnar félagsins hefur nú verið ákveðin þótt nöfn stjórnarmanna liggi ekki fyrir. Samkvæmt heimildum fréttastofu verða þrír fulltrúar frá Deutsche Bank í nýrri stjórn, tveir frá Novator og einn fulltrúi frá íslensku bönkunum, kröfuhöfum Actavis hér innanlands. Þá verður Claudio Albrecht, forstjóri Actavis, stjórnarformaður félagsins í sjö manna stjórn.Höfuðstöðvar fyrirtækisins verða í framtíðinni staðsettar í Sviss og munu fimmtán starfsmenn flytjast héðan frá Íslandi þangað. Þess fyrir utan verður starfseminni haldið óbreyttri hér á landi, en Claudio Albrecht áréttaði í viðtali við fréttastofu í gærkvöldi að Actavis væri íslenskt fyrirtæki og það hygðist halda umsvifum sínum og starfsemi hér á landi óbreyttum.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira