Icelandtilboð hækkaði verð skuldabréfa Landsbankans 12. október 2010 11:17
Verð á skuldabréfum gamla Landsbankans hefur hækkað í vikunni úr genginu 9 og upp í 11. Þetta þýðir að alþjóðamarkaðurinn telur að nú fáist 11% upp í kröfurnar í þrotabú bankans. Nær öruggt er að fréttin um milljarðs punda tilboð Malcolm Walker í Iceland lágvöruverslunarkeðjuna ráði hér ferðinni. Verð yfir svokölluð varin skuldabréf í þrotabúum íslensku bankanna eru birt á vefsíðunni Keldan.is. Þar hefur gengi í skuldabréf Landsbankans lengi staðið í 9 sem þýddi að markaðurinn bjóst við að 9 aurar fengjust upp í hverja krónu af nafnvirði bréfanna. Efnt var til alþjóðlegs uppboðs á skuldabréfum íslensku bankanna þriggja, Glitnis, Kaupþings og Landsbankans skömmu eftir hrunið haustið 2008, til þess að hægt væri að gera upp skuldatryggingasaminga á þeim. Þá var gengi bréfanna í Landsbankanum ákveðið 1,25. Tekið skal fram að gengið mátti ekki fara neðar en 1 eða 1% af nafnvirði samkvæmt reglum uppboðanna. Þetta verð hefur síðan þokast upp á við á þeim tíma sem liðinn er og meir hefur komið í ljós hverjar endurheimturnar verða í þrotabúið Eftir að síðasti Icesave samningurinn við Breta og Hollendinga var felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu snemma árs tóku þessi skuldabréf Landsbankans að hækka verulega. Gengið komst í 11 í apríl og fór hæst í 12 skömmu síðar. Það hafði svo lækkað niður í 9 þegar fréttin um tilboðið í Iceland keðjuna barst.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira