Velta í smásöluverslun dróst saman í maí 9. júní 2010 17:27 Mynd/Stefán
Velta í dagvöruverslun dróst saman um 3,7% á föstu verðlagi í maí miðað við sama mánuð í fyrra en jókst um 3,4% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta dagvöruverslana saman í maí um 3,8% frá sama mánuði árið áður. Verð á dagvöru hækkaði um 7,4% á síðastliðnum 12 mánuðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar á Háskólanum á Bifröst. Sala áfengis dróst saman um 22,7% í maí miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 9,4% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í maí 13,8% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 17,2% hærra í maí síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Fataverslun var 8,2% minni í maí miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og nær óbreytt á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á fötum var 8,9% hærra í maí síðastliðnum en í sama mánuði ári fyrr. Velta skóverslunar minnkaði um 12,8% í maí á föstu verðlagi og jókst um 4,4% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm hækkaði um 19,7% frá maí í fyrra. Velta húsgagnaverslana var 27,2% minni í maí en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og var 21,2% minni á breytilegu verðlagi. Velta sérverslana með rúm minnkaði um 17,9% frá því í fyrra á föstu verðlagi. Verð á húsgögnum var 8,1% hærra í mai síðastliðnum miðaða við sama mánuð í fyrra. Sala á raftækjum í maí minnkaði um 9,1% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 2,7% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á raftækjum hækkaði um 7,0% frá maí 2009.Verðlag og neysla Velta dagvöruverslana fyrstu fimm mánuði þessa árs var 1,9% minni en á sama tímabil í fyrra að raunvirði. Það er mun minni samdráttur en í öðrum tegundum verslana.Til dæmis var velta áfengisverslunar fyrstu fimm mánuði þessa árs 12,4% minni en á sama tímabili síðasta árs. Leita þarf aftur til ársins 2005 til að finna sambærilegt fimm mánaða tímabil með minni raunveltu áfengis. Sala á húsgögnum er enn töluvert minni en í fyrra en hefur samt haldist nokkuð jöfn í hverjum mánuði það sem af er þessu ári. Sala húsgagna í maí síðastliðunum var 59,3% minni en í maí 2008 að raunvirði.Föt hækka minna en skór Athyglisvert er að föt hafa hækkað mun minna í verði en skór. Verð á fatnaði var 8,9% hærra í maí en í sama mánuði í fyrra á meðan verð á skóm hækkaði um 19,7% á sama tíma. Sala á fötum og skóm hefur verið nokkuð jöfn það sem af er þessu ári að raunvirði. Fyrstu fimm mánuði þessa árs var velta raftækjaverslana 4,8% minni en sömu mánuði í fyrra að raunvirði. Raftækjaverslun dróst mikið saman við efnahagshrunið líkt og önnur sérvöruverslun og hefur ekki náð sér á strik síðan þá. Enn hækkar neysluverð umfram laun. Þannig mældist kaupmáttur launa 4,0% minni í apríl síðastliðnum en á sama tíma í fyrra. Innlend greiðslukortanotkun minnkaði á tímabilinu janúar til apríl um 3,8% að raunvirði frá sama tíma í fyrra. Forvitnilegt verður að sjá hverju spáð verður um einkaneyslu í nýrri þjóðhagspá sem væntanleg er innan skamms.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Sjá meira