SPRON segir gengisdóm hafa takmarkað fordæmisgildi 18. júní 2010 11:25
Slitastjórn SPRON mun fara vandlega yfir dómsniðurstöðu Hæstaréttar vegna gengistryggðra bílalána og fylgjast með þeim skrefum sem stjórnvöld og Alþingi hyggjast taka í málinu á næstu dögum.Í tilkynningu segir að SPRON áréttar að sparisjóðurinn var ekki aðili málsins og gerði ekki samninga sambærilega við þá sem voru til meðferðar í framangreindum Hæstaréttardómum. Niðurstaðan hefur því takmarkað fordæmisgildi hvað varðar lánasamninga SPRON.„Ennfremur er því ósvarað hvernig fara skuli með lán þar sem gengistrygging telst ólögleg, enda var það álitaefni ekki lagt fyrir Hæstarétt. Vakin er athygli á því að nú þegar eru rekin nokkur dómsmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur varðandi lögmæti lánasamninga sem eru sambærilegir samningum bankans," segir í tilkynningunni.„Þess er að vænta að niðurstaða Hæstaréttar í þeim málum geti legið fyrir á þessu ári. Í þessum málum hefur það álitaefni verið lagt fyrir dóminn hvernig fara skuli með verðtryggingarþátt samninganna teljist þeir fela í sér ólögmæta gengistryggingu. Sú varakrafa hefur verið gerð í málunum að þá beri að meðhöndla lánin eins og þau hefðu verið íslensk lán frá upphafi, verðtryggð eða óverðtryggð, og njóti þá sambærilegra kjara og lántakendum slíkra lána buðust.Bankinn leggur mikla áherslu á að greiða úr vanda fólks sem glímir við erfiða greiðslubyrði og hvetur lántakendur til að kynna sér þau fjölmörgu úrræði sem bankinn býður til þess að gera fólki kleyft að standa í skilum. Viðskiptavinir SPRON geta sótt um úrræðin á heimasíðu bankans www.spron.is eða komið í útibú Arion banka.Þangað til niðurstaða liggur fyrir af hálfu Hæstaréttar eða löggjafans, mun bankinn nú sem endranær koma til móts við viðskiptavini sína. Hefur bankinn því ákveðið að bjóða lántakendum með erlend lán að framlengja það úrræði að greiða kr. 5.500,- fyrir hverja upphaflegu milljón lánsins og halda þannig lánum sínum í skilum miðað við upphaflega fjárhæð lánsins. Þeim lántakendum sem ekki hafa nýtt sér þetta úrræði hingað til býðst að sækja um það nú.Loks vill SPRON árétta að viðskiptavinir sem nýta sér einhver þeirra fjölmörgu úrræða sem bankinn býður munu ávallt njóta betri réttar sem niðurstaða Hæstaréttar eða löggjafans kann að leiða til.
Mest lesið Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Viðskipti innlent Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Viðskipti innlent Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Atvinnulíf Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Viðskipti erlent Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Framúrskarandi fyrirtæki Ráðin markaðsstjóri Prís Viðskipti innlent Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Samstarf Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Sjá meira
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent
Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Atvinnulíf
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent
Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Atvinnulíf