Engar eða litlar fjárfestingar hjá 60% fyrirtækja innan SA 12. nóvember 2010 09:38
Sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins (SA) hyggjast ekki leggja í umtalsverðar fjárfestingar eða endurbætur á næsta ári, 30% telja það óvíst en einungis 12% hyggjast gera það. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á fjárfestingaráformum fyrirtækjanna. Fjallað er um málið á vefsíðu SA. Þar segir að þegar svörum er skipt eftir atvinnugreinum kemur í ljós að niðurstöður í sjávarútvegi, iðnaði og verslun og þjónustu eru svipaðar heildarniðurstöðunni, þ.e. 8-12% fyrirtækjanna í þessum greinum áforma fjárfestingar á næsta ári en 57-65% ætla ekki að gera það. Fjárfestingaáformin eru algengust í ferðaþjónustu þar sem 21% fyrirtækjanna hyggjast ráðast í fjárfestingar en 42% ekki og í fjármálaþjónustu hyggjast 16% fyrirtækjanna ráðast í fjárfestingar. Í könnuninni var forsvarsmönnum fyrirtækjanna gefinn kostur á því að gefa skýringar á því hvers vegna ráðist verði í fjárfestingar eða ekki á næsta ári. Alls gáfu 422 skýringar á svörum sínum. 63 gáfu skýringar að eigin vali á því hvers vegna fyrirtækin hyggjast ráðast í umtalsverðar fjárfestingar á næsta ári og voru skýringarnar margbreytilegar. Meðal þeirra voru m.a. að tryggja samkeppnisforskot, tryggja samkeppnishæfni, auka gæði og vera virkur í samkeppni, auka markaðshlutdeild, bæta rekstrarafkomuna, bæta þjónustuna, mæta aukinni eftirspurn, byggja upp alþjóðlegt þjónustunet og byggja upp sölukerfi á internetinu. 336 gáfu skýringar að eigin vali á því hvers vegna fyrirtækin hyggjast ekki ráðast í umtalsverðar fjárfestingar á næsta ári. Skýringarnar voru flokkaðar í 7 flokka og taldi þriðjungur svarenda erfitt rekstrarumhverfi og slaka rekstrarafkomu vera helstu ástæðuna. Tæpur fjórðungur rakti skýringuna til óvissu í rekstrarumhverfinu og að viðbættri óvissu í málefnum sjávarútvegs töldu tæp 30% óvissu, sem að miklu leyti má rekja til stefnu stjórnvalda, meginástæðu þess að ekki verður ráðist í fjárfestingar á næsta ári. 8% töldu fjármagnskostnað eða takmarkaðan aðgang að fjármagni vera meginástæðuna, 7% efnahagsstöðu fyrirtækisins og einnig 7% röktu ástæðuna til skatta- eða atvinnustefnu stjórnvalda.
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Sjá meira