Viðskipti innlent

Greining Arion banka spáir verðhjöðnun í júní

Greining Arion banka spáir verðhjöðnun í júní. Samkvæmt nýrri spá greiningarinnar mun vísitala neysluverðs lækka um 0,2% í júní.

Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. Samkvæmt spánni mun 12 mánaða verðbólga mælast 5,8% í þessum mánuði samanborið við 7,5% í maí. Mikil lækkun eldsneytisverðs í mánuðinum ræður mestu um lækkunina, en þó er einnig útlit fyrir að fleiri þættir, svo sem matvara og nýir bílar vegi til lækkunar. Verðhjöðnun er nær óþekkt fyrirbirgði í íslensku efnahagslífi undanfarna áratugi.

Mestu áhrifin til lækkunar eru vegna eldsneytislækkunar sem gæti lækkað vísitöluna um u.þ.b. 0,3%. Greining gerir enn fremur ráð fyrir að lækkun matvöruverðs muni hafa u.þ.b. 0,2% áhrif til lækkunar. Einnig er gert ráð fyrir að verðlækkun á nýjum bílum lækki vísitöluna um u.þ.b. 0,2%.

Samanlagt munu lækkanir á eldsneyti, matvöru og bílum leiða til 0,7% lækkunar vísitölunnar að mati greiningarinnar. Í Markaðspunktunum segir að gangi þessar forsendur eftir þyrftu aðrir liðir vísitölunnar að hækka ansi mikið ef niðurstaðan þennan mánuðinn ætti að vera yfir núllinu. Að sama skapi gæti verðhjöðnunin allt eins orðið meiri en spáin segir til um ef aðrir liðir vísitölunnar verða spakir að þessu sinni.

„Líkt og mánuðinn á undan gerum við ráð fyrir að ýmsir liðir hafi smávægileg áhrif til hækkunar vísitölunnar í júní. Þar má t.d. nefna árstíðabundnar hækkarnir sem tengjast sumarvarningi. Þessi áhrif komu raunar að einhverju leyti fram í maí sl. en við gerum ráð fyrir að þessi áhrif megi einnig merkja í júní," segir í Markaðspunktunum.

„Spá okkar miðast við 0,1% áhrif húsnæðisverðs til hækkunar á vísitöluna en raunin gæti þó orðið einhver allt önnur, enda er erfitt að spá fyrir um mánaðarlegar breytingar á þessum lið. Vísitala íbúðaverðs hjá Fasteignamatinu hækkaði töluvert í síðustu mælingu eða um 1,9% sem gæti verið vísbending um einhver hækkunaráhrif húsnæðisliðarins."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×