Steingrímur þögull um möguleg skaðabótamál vegna gengisdóms Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. júlí 2010 17:22 Steingrímur J. Sigfússon tjáir sig ekki um möguleg málaferli kröfuhafa bankanna gegn ríkinu .
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra vill ekki tjá sig um viðbrögð sín gagnvart mögulegum málaferlum kröfuhafa gömlu bankanna vegna hæstaréttardómsins frá 16. júní vegna gengistryggðu lánanna. Greint hefur verið frá því í Fréttablaðinu og í kvöldfréttum Stöðvar 2 að skilanefndir Glitnis og Kaupþings, sem eru að stærstum hluta til eigendur Íslandsbanka og Arion, hafi kannað grundvöll þess að höfða skaðabótamál gegn ríkinu vegna forsendubrests í samningum. Við flutning á eigum gömlu bankanna í þá nýju hafi ekki verið gert ráð fyrir kostnaði vegna ólögmætra gengistryggðra lána. „Ég ætla ekkert að tjá mig um það. Mér finnst menn dálítið fljótir á sér að tala um slík mál í fjölmiðlum. Ég allavega bregst ekki við með einum eða neinum hætti," segir Steingrímur þegar hann er inntur eftir viðbrögðum. Steingrímur segir ennfremur að ráðuneytin séu ekki að undirbúa nein viðbrögð vegna hugsanlegra málaferla sem boðuð séu í fjölmiðlum. Það sé hins vegar alltaf þannig að á hverjum tíma sé hugað að málsvörnum ríkisins þegar þörf krefst. „Og það er svo sem því miður af nógu að taka í þeim efnum," segir Steingrímur. Slík mál séu þá í höndum ríkislögmanns eða annarra sem fengnir séu til starfa þegar á reyni. „Það er bara hluti af skyldum ríkisins að halda uppi vörnum fyrir sjálft sig ef að til slíks kemur," segir Steingrímur.
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Sjá meira