Mikilvægt að skattleggja ekki frekar orkunotkun landsmanna 19. febrúar 2010 12:22 „
Mikilvægt er að stjórnvöld séu þessa meðvituð og leggi ekki frekari skatta en orðið er á orkunotkun landsmanna," segir í ályktun aðalfundar Samorku sem stendur yfir í dag. Ályktunin í heild hljóðar svo: „Íslensk heimili, fyrirtæki og stofnanir búa að mun lægra verði á raforku, heitu vatni til kyndingar og úrvals neysluvatni en þekkist í flestum okkar venjulegu samanburðarlöndum. Þannig hefur þessi samanburður verið til langs tíma og verður ekki rakinn til þeirrar miklu lækkunar sem orðið hefur á gengi krónunnar. Þarna njótum við Íslendingar góðs af ríkum auðlindum landsins, en nýting innlendra endurnýjanlegra orkugjafa sparar þjóðarbúinu tugi milljarða króna ár hvert. Í lang flestum tilvikum eru íslensk orku- og veitufyrirtæki í eigu almennings, þ.e. fyrirtækja sem rekin eru af sveitarfélögum og ríki. Öll hafa þessi fyrirtæki verið rekin með afar hóflegri arðsemi, sem hefur þó verið hærri af raforkusölu til stóriðju. Arður almennings og atvinnurekstrar af þessum ríkulegu auðlindum landsins er því fyrst og fremst í formi lágra reikninga, vegna nýtingar þessara ríkulegu náttúrugæða. Mikilvægt er að stjórnvöld séu þessa meðvituð og leggi ekki frekari skatta en orðið er á orkunotkun landsmanna. Bein erlend fjárfesting, með tilheyrandi hagvaxtaráhrifum, hefur e.t.v. aldrei verið íslensku atvinnulífi mikilvægari en einmitt um þessar mundir. Endurnýjanleg orka er eitt helsta aðdráttaraflið í þeim efnum enda henni ætlað stórt hlutverk í endurreisn íslensks efnahagslífs, m.a. í efnahagsáætlunum stjórnvalda. Íslensk orkufyrirtæki lýsa sig reiðubúin til þátttöku í endurreisninni og munu þar leggja sitt af mörkum eins og kostur er. Þá binda fyrirtækin miklar vonir við að væntanleg afgreiðsla 2. áfanga rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma muni stuðla að aukinni sátt um nýtingu íslenskra orkulinda, færa orkufyrirtækjunum aukin og spennandi verkefni og þannig stuðla að mikilvægri uppbyggingu í íslensku atvinnulífi."
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira