Snörp lækkun á skuldatryggingaálagi ríkissjóðs 19. febrúar 2010 13:46
Snörp lækkun varð á skuldatryggingaálagi ríkissjóðs í dag. Samkvæmt mælingu CMA gagnaveitunnar lækkaði álagið um rúma 33 punkta eða tæp 6% og stendur núna í tæpum 534 punktum.Þetta er mesta lækkunin á skuldatryggingaálagi þjóða í dag. Næst á eftir Íslandi kemur Austurríki þar sem álagið lækkaði um 4%, hjá Finnlandi lækkaði álagið um 3,5% og hjá Bandaríkjunum um 2,5%. Tekið skal fram að álag þessara þjóða, utan Íslands, er mælt í tveggja stafa tölum.Í daglegu fréttabréfi CMA segir að lækkunin á skuldatryggingaálagi ríkissjóðs sé vegna útboðs á skuldabréfum. Ekki er gott að sjá hvað átt er við enda hafa engin útboð á skuldabréfum í erlendri mynt orðið á vegum ríkisins í langan tíma.Jón Bjarki Bentsson sérfræðingur hjá greiningardeild Íslandsbanka segir að hugsanlega sé hér verið að vitna í hreyfingar á skuldabréfaflokki þeim sem koma á til greiðslu á næsta ári og nemur einum milljarði evra.„Þessi bréf hafa ekki hreyfst lengi en ég sé núna í miðlunarkerfi Reuters að munurinn á kaup- og sölutilboðum hefur minnkað í vikunni og ávöxtunarkrafan hefur lækkað," segir Jón Bjarki. „Það hafa því einhver viðskipti átt sér stað með þessi bréf. Þar fyrir utan er að sjálfsögðu alltaf ánægjulegt þegar skuldatryggingaálagið minnkar."Skuldatryggingaálag á ríkissjóð í 534 punktum samsvarar því að reiða þurfi fram rúmlega 5,3% af nafnverði skuldabréfs til að tryggja eigenda þess fyrir greiðslufalli næstu 5 árin.
Mest lesið Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Sjá meira