Upptaka evru kæmi illa við Íbúðalánasjóð 19. febrúar 2010 09:42
Samkvæmt áliti félags- og tryggingamálaráðuneytisins myndi upptaka evru sem gjaldmiðils koma illa við starfsemi Íbúðalánasjóðs. Hugsanlegt tap sjóðsins myndi nema um 5,5 milljörðum kr.Þetta kemur fram í fyrirspurn Ólafar Nordal þingmanns Sjálfstæðisflokksins til efnahags- og viðskiptaráðherra um kosti og galla þess að taka upp evru í ljósi umsóknar Íslands að ESB. Ólöf spurði m.a. um áhrifin á Íbúðalánasjóð.Í svari ráðherra segir að vegna þessarar fyrirspurnar fór ráðuneytið þess á leit við félags- og tryggingamálaráðuneytið að það gæfi álit á áhrifum af upptöku evru á stöðu Íbúðalánasjóðs og lánasafns sjóðsins.Í svari félags- og tryggingamálaráðuneytisins kom fram að áhrif upptöku evru á stöðu Íbúðalánasjóðs og lánasafns hans ráðist einkanlega af breytingum á íslenskum fjármagnsmarkaði í kjölfarið og af því hversu margir núverandi lánþegar sjóðsins ákveða að greiða upp sín lán. Unnt er að grípa til aðgerða í aðdraganda upptöku evru sem lágmarkað geta eða eytt áhættu Íbúðalánasjóðs að þessu leyti.„Íbúðalánasjóður ber uppgreiðsluáhættu af um 75% af lánasafni sínu. Uppgreiðsluálag er á tæplega 16% lána sjóðsins en breytilegt álag er á innan við 10% lána hans. Félags- og tryggingamálaráðherra hefur þó heimild til þess að leggja á sérstakt uppgreiðsluálag við sérstakar aðstæður gagnvart rúmum meiri hluta þeirra lána sem sjóðurinn ber nú uppgreiðsluáhættu af (lán sem veitt eru eftir 1. júní 2004).Aðeins um 6,5% af skuldabréfum útgefnum af Íbúðalánasjóði hafa uppgreiðsluákvæði. Það eru svokölluð húsbréf sem hafa útdrætti í samræmi við uppgreiðslu lána.Íbúðalánasjóður hefur látið meta möguleg áhrif upptöku evru á fjárhag sjóðsins ef ekkert yrði aðhafst til að draga úr áhættu sjóðsins. Í því mati er gert ráð fyrir að breytingar á vaxtamarkaði gerist hratt. Miðað er við að nýir útlánsvextir sjóðsins verði að jafnaði um 3,5% og ríkiskrafa á markaði 3%. Miðað er við að uppgreiðslur muni nema um 38% af heildarútlánum sem er í samræmi við söguleg gögn sjóðsins.Áhrif þessarar atburðarásar yrði neikvæð fyrir sjóðinn. Stafar það annars vegar af breytingum á stöðu eigna og skulda, og hins vegar af lakari vaxtajöfnuði. Sjóðurinn gæti greitt skuldbindingar á hærri ákvöxtunarkröfu og það drægi úr neikvæðum áhrifum. Miðað við fyrrgreindar forsendur yrðu afkomuáhrif vegna breytinga eigna og skulda neikvæð um 5,5 milljarða kr.Miðað við sögulega endurfjármögnunarþörf Íbúðalánasjóðs má áætla að það tæki um fjögur ár að endurfjármagna uppgreiðslur. Áætlað vaxtatap sjóðsins yfir það tímabil yrði um 2,5 milljarðar kr.Heimild til að innleysa öll húsbréf mundi draga úr áhrifum uppgreiðslna sem nemur 1,2 milljörðum kr., þannig að breytingar eigna og skulda yrðu neikvæð um 4,3 milljarða kr. í stað 5,5 milljarða kr. Þess ber að geta að samkvæmt reglugerð nr. 544/2004 getur ráðherra sett á sérstakt uppgreiðslugjald sem mundi bæta Íbúðalánsjóði upp neikvæðan vaxtamun. Ef slíkt yrði gert má gera ráð fyrir að áhrifin á sjóðinn yrðu lítil sem engin.Til þess að mæta þessum hugsanlegu neikvæðu áhrifum er í áætlunum félags- og tryggingamálaráðuneytisins gengið út frá því að efnt yrði til skiptiútboðs á vegum Íbúðalánasjóðs þegar viðmiðunargegni krónu gagnvart evru verði ljóst. Í slíku útboði yrði öllum eigendum verðtryggðra íbúðabréfa án uppgreiðsluheimildar boðið að skipta yfir í óverðtryggð evrubréf með skiptiálagi. Markaðurinn mundi þá verðmeta þann mismun á verðmæti sem um væri að ræða milli eldri bréfa og þeirra nýrri.Útboð sem þessi eru alþekkt og sem dæmi má nefna að á þennan hátt var andvirði um 300 milljarða kr. í húsbréfum skipt út fyrir ný íbúðabréf árið 2004. Skilmálar slíks skiptiboðs yrðu hannaðir með það fyrir augum að tryggja jákvæðan árangur útboðsins með útgáfu nýrri og markaðshæfari bréfa. Samhliða yrði skuldurum Íbúðalánasjóðs gefinn kostur á að skipta lánum úr verðtryggðum lánum í íslenskum krónum í óverðtryggð evrulán á föstum vöxtum.Greiðsluflæði sjóðsins mundi á þann hátt ná fullu jafnvægi og gengisáhætta og vaxtaáhætta ekki aukast. Ef góður árangur næst í slíku skiptiútboði getur Íbúðalánasjóður takmarkað eða komist alfarið undan neikvæðum afleiðingum upptöku evru á fjárhag sjóðsins."
Mest lesið Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Sjá meira