Orkuútrásin byggir á samstarfi við MHI í Japan 25. maí 2010 11:13 Finnur Kristinsson, Landlagi, Sturla F. Birkisson, Jarðborunum, Júlíus Karlsson, Eflu, Eyjólfur Árni Rafnsson, Mannviti, Guðlaugur G. Sverrisson og Hjörleifur B. Kvaran, Orkuveitu Reykjavíkur, Sveinn Ingi Ólafsson, Verkís, Ivon Stefán Cilia, T.ark-Teiknistofunni, Ólafur G. Flóvenz, ÍSOR.
Samstarfi átta leiðandi fyrirtækja í jarðhitanýtingu hérlendis var komið á í framhaldi af samstarfsyfirlýsingu Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og japanska stórfyrirtækisins Mitsubishi Heavy Industries (MHI), sem undirrituð var í Tókýó 15. apríl sl. Í samræmi við hana er OR að skapa breiðan vettvang íslenskrar sérþekkingar í jarðhitanýtingu.Í tilkynningu segir að forystumenn átta leiðandi fyrirtækja í jarðhitanýtingu hér á landi skjalfestu í dag þann ásetning sinn að starfa saman að jarðvarmaverkefnum erlendis. Orkuveita Reykjavíkur (OR), sem er eitt stærsta jarðhitafyrirtæki heims, leiðir samstarfið og aðild að því eiga einnig þrjár stærstu verkfræðistofur landsins - Efla, Mannvit og Verkís - Jarðboranir, Íslenskar orkurannsóknir og arkitektastofurnar T.ark Teiknistofa og Landslag.Markmið samstarfsins er að opna fyrirtækjunum nýjar leiðir til að koma þekkingu sinni á markað því eftirspurn eftir reynslu á öllum sviðum jarðhitanýtingar fer hratt vaxandi um víða veröld.Sá vettvangur hefur nú tekið á sig mynd og mun frekari þróun hans velta á þeim verkefnum sem aðilarnir kjósa að koma með inn í samstarfið. Í samstarfsyfirlýsingu OR og MHI og yfirlýsingunni sem undirrituð var í dag er reiknað með að frumkvæði að nýjum verkefnum geti komið frá hvaða aðila samstarfsins sem er, sem þá eigi bakland og stuðning í öðrum aðilum samstarfsins við frekari þróun tækifæranna.Í viljayfirlýsingunni felst ekki skuldbinding aðila um slíka þátttöku heldur er skapaður farvegur fyrir formlegt samstarf sem tekin verður afstaða til í hverju tilfelli fyrir sig.Aðilar viljayfirlýsingarinnar, sem undirrituð var í höfuðstöðvum OR í dag, eru fyrst og fremst að horfa til sölu á sérþekkingu sinni á sviði jarðvarmanýtingar. Hún liggur á mismunandi sviðum; að finna hugsanleg nýtingarsvæði, rannsókn þeirra, mat á umhverfisáhrifum, uppbyggingu virkjana, reksturs þeirra og sölu á afurðum þeirra. Ekki er gert ráð fyrir að fjármögnun hugsanlegra samstarfsverkefna verði í höndum þessara aðila.Forráðamenn OR áttu í síðasta mánuði fundi með ráðamönnum japanskra banka og þróunarsjóða auk fulltrúa japanskra stjórnvalda um hugsanlega aðkomu að fjármögnun jarðhitaverkefna m.a. í þróunarríkjum. Fram kom á fundunum að íslenskur þekkingarklasi, sem hefði yfir að ráða fremstu sérfræðingum á öllum sviðum jarðvarmanýtingar ásamt japanskri tækniþekkingu, væri eftirsóttur samstarfsaðili.Aðilar viljayfirlýsingarinnar hafa allir tekið þátt í þróun jarðhitanýtingar hér á landi síðustu ár og áratugi, bæði fyrir Orkuveitu Reykjavíkur og önnur orkufyrirtæki. Öll hafa fyrirtækin komið að uppbyggingu virkjana Orkuveitu Reykjavíkur á Nesjavöllum og/eða á Hellisheiði. Umfangsmesti búnaður beggja virkjana var keyptur af MHI eftir opið útboð. Samstarf OR og MHI nær því yfir 20 ára tímabil. Virkjanirnar tvær þykja um margt til fyrirmyndar í uppbyggingu jarðhitanýtingar og hönnun slíkra mannvirkja.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira