Mjög dregur úr viðskiptum með atvinnuhúsnæði 23. júlí 2010 11:10
Mjög hefur dregið úr viðskiptum með atvinnuhúsnæði í kreppunni. Í júní síðastliðnum var 68 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði þinglýst á landinu öllu. Í sama mánuði árið 2006,þegar viðskiptin voru hvað mest á þessum markaði í aðdraganda þenslunnar sem endaði með bankahruninu, var 311 skjölum þinglýst. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að fjöldi viðskiptanna í júní í ár er því rétt ríflega fimmtungur þess sem hann var í sama mánuði 2006. Kemur þetta fram í gögnum sem Þjóðskrá Íslands birti í gær. Nokkrar sveiflur geta verið í þessum gögnum á milli mánaða og þannig meira upplýsandi að skoða gögn sem ná til lengri tíma en eins mánaðar. Þannig var þinglýst 523 kaupsamningum og afsölum á fyrri hluta þessa árs samanborið við 1.805 á sama tímabili 2006. Þannig mælt voru viðskiptin á fyrri hluta þessa árs með atvinnuhúsnæði einungis 29% af því sem þau voru árið 2006. Hrunið á þessum markaði með atvinnuhúsnæði hefur verið öllu meira á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni. Þannig var fjöldi þinglýstra kaupsamninga og afsala með atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu á fyrri hluta þessa árs um 23% af því sem hann var 2007 en 39% á landsbyggðinni. Þenslan á þessum markaði var líka öllu meiri á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. Nú þegar vísbendingar berist víðsvegar úr hagkerfinu um að kreppan hafi náð botni er áhugavert að fjöldi þinglýstra kaupsamninga og afsöl með atvinnuhúsnæði var sá sami á landinu öllu í júní í ár og í sama mánuði í fyrra eða 68. Samdráttur hefur hins vegar verið síðustu mánuði og þannig var tæplega 18% færri svona samningar á fyrri hluta þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra. Samdrátturinn var 27% á milli fyrri hluta árs 2008 og 2009. Það virðist því hafa hægt á samdrættinum en of snemmt er að segja að kreppan sé búin að ná botni sínum á markaði með atvinnuhúsnæði.
Mest lesið Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Fleiri fréttir Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Sjá meira