Icesave ekki hluti af skuldauppgjöri Höskuldur Kári Schram skrifar 23. júlí 2010 18:30
Icesave reikningar Landsbankans eru ekki hluti af skuldauppgjöri Björgólfs Thors Björgólfssonar þrátt fyrir að félag í hans eigu hafi átt tæplega helming hlutabréfa í bankanum og fengið marga milljarða í arð. Talsmaður Björgólfs segir að hann beri enga ábyrgð á Icesave. Björgólfsfeðgar ásamt Magnúsi Þorsteinssyni keyptu tæplega 46 prósent hlut ríkisins í Landsbankanum þegar bankinn var einkavæddur í árslok 2002. Björgólfsfeðgar áttu að meðaltali um 45 prósent hlut í bankanum frá einkavæðingu fram að hruni haustið 2008. Á þessu tímabili fengu þeir fjóra og hálfan milljarð króna í arðgreiðslur fyrir sinn eignarhlut. Í gær tilkynnti Björgólfur Thor Björgólfsson um að hann hafi komist að samkomulagi við sína lánardrottna um heildaruppgjör allra skulda án afskrifta - eins og segir í tilkynningunni. Inni í þessu uppgjöri er þó ekki Icesave reikningur Landsbankann sem óbreyttu mun kosta þjóðarbúið mörg hundruð milljarða króna. Talsmaður Björgólfs segir að hann beri ekki ábyrgð á Icesave. „Icesave reikningurinn er ekki skuld Björgólfs Thors. Hann var fjárfestir í Landsbankanum. Hann kom aldrei að stjórn bankans og mátti ekki skipta sér að rekstri hans enda var hann ekki þar í stjórn svo Icesave var ekki á hans ábyrgð frekar en annarra þeirra þúsunda hluthafa sem áttu hlut í Landsbankanum við fall hans," segir Ragnhildur. Hún segir að Björgólfur hafi borið sína ábyrgð því að hann hafi misst allan hlut sinn í fyrirtækinu þegar að bankinn féll. Ragnhildur segir að stjórnvöld beri ábyrgðina á þessu Icesave klúðri. Hún telji að það þurfi að fara að semja um málið.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira