Viðskipti innlent

Kaupmáttur hefur aukist um 2,2% á liðnu ári

Vísitala kaupmáttar launa í september 2010 er 107,7 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,2%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að launavísitala í september 2010 er 380,7 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,0%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×