Eistneskur auðjöfur vildi yfirtaka Grindavík Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. maí 2010 14:05 Ekki þótti forsvaranlegt að leyfa eistneskum auðjöfri að yfirtaka knattspyrnu deild Grindavíkur. Mynd*/ Vilhelm.
Knattspyrnudeild Grindavíkur hafnaði síðasta sumar tilboði frá eistneskum auðjöfri um að yfirtaka knattspyrnudeildina og leggja tugi milljóna króna inn í rekstur hennar, segir Þorsteinn Gunnarsson, formaður knattspyrnudeildarinnar í samtali við Vísi. Þorsteinn gerir málið að umtalsefni í nýlegum pistli sem birtist í riti knattspyrnudeildarinnar. „Hann minnti mig svolítið á Bjarna Ármannsson enda vatnsgreiddur og með allt á hreinu. Hann vatt sér beint að efninu og á þann hátt að hakan mín datt alla leið niður á gólf. Hann vildi leggja til tugi milljóna króna inn í rekstur knattspyrnudeildarinnar, taka með sér a.m.k. sjö til átta landsliðsmenn frá heimalandi sínu, hreinsa út þjálfarateymið og stærstan hlutann af leikmannahópnum, fara með liðið í þriggja mánaða æfingabúðir til Kýpur, gera liðið strax að Íslandsmeisturum og koma þannig liðinu inn í forkeppni Meistaradeildarinnar þar sem stóri peningapotturinn er og stórgræða peninga," segir Þorsteinn. Þorsteinn segir að maðurinn, sem hann nafngreinir ekki, hafi sjálfur viljað taka yfir stjórn fótboltans og reka þetta einn og gleðja alla Grindvíkinga með því að gera liðið að því sterkasta og sigursælasta á landinu. Þorsteinn segist sjálfur hafa haldið að maðurinn væri að grínast. „En um mig hríslaðist veruleg ónotatilfinning þegar það rann upp fyrir mér að honum var fúlasta alvara. Ég sá að félagar mínir í stjórninni voru eitt spurningamerki í framan. Af hverju yfirtók hann bara ekki lið í Lettlandi? Hvaðan komu þessir fjármunir? Við reyndum kurteisislega að útskýra fyrir honum hvernig íslensk íþróttahreyfing er byggð upp og svona yfirtaka kæmi aldrei til greina og samrýmdist ekki íslenskum lögum og reglugerðum," segir Þorsteinn. Manninum hafi hins vegar veirð gerð grein fyrir því að honum væri velkomið að gerast risastór styrktaraðili knattspyrnudeildarinnar en án nokkurra skuldbindinga af hálfu félagsins.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Sjá meira