Hátt í 40 þúsund hafa nýtt sér úrræði í boði 13. mars 2010 05:00 Bankarnir bjóða upp á sértækar leiðir fyrir fólk sem glímir við greiðsluvanda en þær eru mismunandi eftir bönkum. Fréttablaðið/Anton
Af viðskiptavinum Landsbankans og Íslandsbanka hafa 60 prósent nýtt sér sjálfvirka greiðslujöfnun íslenskra íbúðalána, samkvæmt upplýsingum frá bönkunum. Heldur fleiri hafa farið þá leið hjá Arion banka, eða 68 prósent. Að auki bjóða bankarnir upp á sértækar leiðir fyrir fólk sem lendir í greiðsluvanda, en þær eru misjafnar eftir bönkum. Stóru bankarnir þrír bjóða þó allir upp á höfuðstólslækkun erlendra lána í einhverri mynd og einhverja aðlögun íbúðalána. Þá hafa Landsbankinn og Arion banki jafnframt boðið sérstakar lausnir á borð við tímabundna fasta greiðslu afborgana og vaxtagreiðslur einvörðungu í eitt ár. Hermann Björnsson, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka, hafnar því að „ekkert sé að gerast" eins og vilji bregða við að heyrist í almennri umræðu um bankana. Á annað þúsund manns hafi nýtt sér sérstakar lausnir bankans þær níu vikur sem þær hafi staðið til boða. Þá sé rangt að lausnirnar henti helst hátekjufólki sem farið hafi offari í neyslu. Meirihluti þeirra sem nýtt hafi sér úrræði bankans sé ungt fólk með sína fyrstu íbúð, eða nálægt 70 prósentum. Þá hafi um 35 prósent viðskiptavina með erlend íbúðalán nýtt sér höfuðstólsleiðréttingu Arion banka. Samtals hafi um 14 þúsund viðskiptavinir bankans nýtt sér lausnir hans eða opinberu úrræðin sem í boði séu. Í tilkynningu sem Arion banki sendi frá sér í gær er frá því greint að starfsfólk Arion banka hafi að jafnaði afgreitt um 150 lánabreytingar á viku síðustu vikur. Hermann segir markmiðið að finna fyrir sumarið hentugar lausnir með öllum þeim sem búi við skuldavanda, en lausnir bankans standa viðskiptavinum til boða fram til 1. júlí. Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að Arion hafi ákveðið að krefjast ekki uppboða vegna vangoldinna húsnæðislána til loka ársins 2010. „Það er óháð því hvort um er að ræða innlend eða erlend lán." Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum hafa um 1.650 manns nýtt sér úrræði bankans, en þá er ekki litið til sjálfvirkrar greiðslujöfnunar innlendra lána. Hjá Íslandsbanka fengust þær upplýsingar að í lok janúar hafi 1.100 viðskiptavinir nýtt sér höfuðstólslækkun íbúðalána og 10.000 greiðslujöfnun. 810 manns hafi nýtt sér sérstaka niðurgreiðslu yfirdráttar. Hjá ISB Fjármögnun hafi hins vegar 2.900 einstaklingar nýtt sér höfuðstólslækkun bílalána og bílasamninga og 1.110 greiðslujöfnun. Þá hafi 520 rekstraraðilar fengið höfuðstólslækkun. Samtals hafi því rúmlega 16 þúsund nýtt sér einhver af þeim almennu úrræðum sem í boði séu hjá bankanum. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira