Áliðnaðurinn notar 75% af allri raforku á Íslandi 20. apríl 2010 10:03 Í skýrslunni er fjallað um þá pólitísku umræðu sem átt hefur sér stað um orku- og auðlindamál á Íslandi á undanförnum árum.
Áliðnaður er langstærsti orkunotandinn á Íslandi og nýtir meira en 75% af allri raforku sem framleidd er á Íslandi. Aðrar iðngreinar, t.d. kísiljárniðnaður nota um 11% orkunnar en raforkunotkun til heimilisnota er einungis um 5% af heildar raforkunotkun á landinu. Íslandsbanki kynnti í morgun nýja skýrslu um orkumarkaðinn á Íslandi á fundi með fagaðilum í íslenskum jarðhitaiðnaði sem haldinn var á Kirkjusandi. Í skýrslunni er fjallað almennt um orkumarkaðinn á Íslandi, stefnu stjórnvalda og lagaramma og þá fjárfestingaþörf sem fyrir hendi er í greininni. Í tilkynningu segir að um 85% af allri jarðhitaorku á Íslandi fara í raforkuframleiðslu og húshitun en um 90% af öllum heimilum landsins eru hituð upp með jarðvarma. Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar er jarðhitageirinn á Íslandi mjög virkur og fjöldi fyrirtækja hafa rutt sér til rúms á sviðið þjónustu, ráðgjafar og borunar. Þá eru opinberir aðilar mjög mikilvægir þátttakendur í íslenskum jarðhitaiðnaði. Ísland er mjög virkur þátttakandi í alþjóðlegum rannsóknum og þróun og styður þjóðir um allan heim við þróun jarðvarmanýtingar. Íslensk fyrirtæki eru ennfremur virk á alþjóðlegum vettvangi þegar kemur að því að selja þjónustu sína og þekkingu og eru í mörgum tilfellum leiðandi á sínu sviði. Í skýrslunni er fjallað um þá pólitísku umræðu sem átt hefur sér stað um orku- og auðlindamál á Íslandi á undanförnum árum. Þessi umræða hefur tekið við sér að nýju nú þegar ljóst er að orkuiðnaður mun vera í lykilhlutverki þegar kemur að uppbyggingu í íslensku atvinnulífi. Töluverð umræða fer fram um þessar mundir um eignarhald og nýtingarrétt á náttúruauðlindum landsins og hvernig nýta beri orkuna. Mörg fyrirtæki í orkufrekum iðnaði líta til þess að hefja starfsemi á Íslandi. Á sama tíma eru veitufyrirtæki að leggja drög að stækkunum og nýjum virkjunum. Stjórnvöld og stofnanir hafa verið í lykilhlutverki í rannsóknum á jarðhita. Fjárhagsleg áhætta við forrannsóknir og þróun jarðhitaorku hefur verið hindrun í vegi þess að fá fjármagn frá einkaaðilum í slík verkefni. Miðað við þau verkefni sem eru pípunum, þar sem gert er ráð fyrir um 300 milljarða fjárfestingu í geiranum, er ljóst að þörf er að á fjármagni frá utanaðkomandi aðilum utan núverandi eigendahóps til að þróa orkuverkefni áfram á Íslandi. Þá kemur fram í skýrslunni að á sama tíma og Ísland keppi við aðrar þjóðir um fjármagn til jarðhitaverkefna og þróunarkostnaður sé samkeppnishæfur er það helst lágt raforkuverð sem stendur í vegi fyrir því að erlendir fjárfestar telji slík verkefni nægilega hagfelld.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira