Óvarlegt að álykta að kreppunni sé lokið 8. júní 2010 09:38
Þrátt fyrir að lítilsháttar hagvöxtur hafi mælst hérlendis tvo ársfjórðunga í röð er óvarlegt að álykta að kreppunni sé lokið. Raunar eru vísbendingar um að hagvöxturinn verði aftur neikvæður á öðrum ársfjórðungi þessa árs.Það sem veldur því að hagvöxtur mældist 0,6% milli fjórða ársfjórðungs síðasta árs og þess fyrsta í ár er aukin birgðastaða í landinu. Er þá einkun átt við framleiddar en óseldar birgðir af sjávarafurðum. Hagvöxtur á ársfjórðungnum þar á undan mældist 0,4% en þar gætti alfarið áhrifa af kaupum á skipi og flugvél til landsins.Jón Bjarki Bentsson sérfræðingur hjá greiningu Íslandsbanka segir að af þessum sökum sé alls ekki hægt að álykta sem svo að kreppunni sé lokið á Íslandi. Hvað fyrrgreinda birgðastöðu varðar muni hún jafna sig út í tölunum yfir næsta ársfjórðung.„Það sem er jákvætt í tölum Hagstofunnar er hvað einkaneyslan dregst lítið saman milli ársfjórðunganna," segir Jón Bjarki. „Slíkt rímar við aðrar tölur um að botni hafi verið náð í neyslu heimilanna."Jón Bjarki bendir hinsvegar á að nú séu vísbendingar um að einkaneyslan sé að dragast saman á nýjan leik. Því séu töluverðar líkar á að við næstu mælingu komi fram neikvæður hagvöxtur að nýju eins og verið hefur allar götur frá hruninu haustið 2008.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira