Óheimilt að greiða þóknanir 6. október 2010 04:30 KB ráðgjöf sér um lífeyrissparnaðarleiðina Vista fyrir Arion banka. fréttablaðið/anton
Óheimilt er að ráðstafa iðgjöldum þeirra viðskiptavina sem eru með viðbótarlífeyrissparnað með öðrum hætti en í beinan sparnað, samkvæmt fjármálaráðuneytinu. Þeim aðilum sem haga samningum sínum svo, eins og Arion banka og KB ráðgjöf, hefur verið gerð grein fyrir því, samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu. Fjármálaráðuneytið hefur á árinu hafnað beiðnum um staðfestingu á reglum lífeyrissjóða þar sem kveðið er á um aðra ráðstöfun iðgjalda en heimil er samkvæmt lögum. „Iðgjaldi eða iðgjaldshluta samkvæmt samningi um séreignarsparnað skuli einungis verja til öflunar lífeyrisréttinda. Ekki sé að finna nein frávik frá þeim lögum,“ segir í svari ráðuneytisins til Fréttablaðsins. Arion banki ákvað að hætta að selja nýja samninga Vista í kjölfar umfjöllunar um sex greiðslur mánaðarlegra iðgjalda sem renna í þóknun til KB ráðgjafar en ekki í lífeyrissparnað viðskiptavina, sem þeir gætu átt á hættu að borga bakreikninga af. Ríkisskattstjóri sendi fjármálaráðuneytinu bréf í apríl varðandi málið, sem hefur verið til skoðunar síðan þá. Ráðuneytið hefur engum óskum eða fyrirmælum beint til ríkisskattstjóra um að iðgjöld sem ráðstafað hefur verið í þóknanir til fyrirtækja verði skoðuð. - sv
Mest lesið Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Situr einn Íslendinga eftir á lista Forbes Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sjá meira