Hlutafé Farice verður aukið um 9,7 milljarða 13. desember 2010 08:52
Endurskipulagningu Farice er nú að ljúka og mun hlutafé félagsins verða aukið um 63,7 milljónir evra eða um 9,7 milljarða kr. Eftir skipulagninguna mun hlutaféið því nema 75 milljónum evra. Í tilkynningu segir að eignarhaldsfélagið Farice ehf. og dótturfélag þess, Farice hf., hafa síðustu mánuði unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu félaganna í samvinnu stærstu kröfuhafa þeirra og hluthafa. Samkomulag hefur náðst um útlínur slíkrar endurskipulagningar og er stefnt að því að henni ljúki eigi síðar en þann 16. desember n.k. Þann 10. desember 2010 héldu Eignarhaldsfélagið Farice ehf. og Farice hf. bæði hluthafafundi. Á hluthafafundi Farice hf. var samþykktur samruni félagsins við móðurfélag þess, Eignarhaldsfélagið Farice ehf. Á hluthafafundi Eignarhaldsfélagsins Farice ehf. var samruni félaganna einnig samþykktur með tilheyrandi hækkun hlutafjár eftir að hlutafé félagsins hafði verið lækkað til að mæta tapi. Þá var nafni sameinaðs félags breytt í Farice ehf., auk þess sem skerpt var á tilgangi félagsins. Stærstu hluthafar Farice ehf., íslenska ríkið og Landsvirkjun, leggja félaginu til nýtt hlutafé í A-flokki að fjárhæð 11 milljónir evra. Þá hafa stærstu óveðtryggðu kröfuhafar félagsins samþykkt sem hluta af fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins að breyta þeim kröfum í hluti í B-flokki í félaginu samtals að upphæð 52,7 milljónir evra , sem veitir þeim m.a. forgang á greiðslur frá félaginu umfram hluthafa í A-flokki. Hlutafé sameinaðs félags verður því aukið um samtals 63,7 milljónir evra og mun eftir endurskipulagninguna nema um 75,5 milljónum evra. Veðtryggðir lánveitendur Farice ehf., að undanskildum skuldabréfaflokki EFAR 09 1 sem verður óbreyttur, hafa samþykkt að endurfjármagna skuldir félagsins. Heildarskuldir að meðtöldum skuldabréfaflokknum munu eftir endurskipulagninguna nema um 56,5 milljónum evra. Aukning hlutafjár og endurfjármögnun skulda er háð endanlegri skjalagerð lánasamninga, sem fyrr greinir er gert ráð fyrir að ljúki eigi síðar en 16. desember n.k.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira