Viðskipti innlent

Eignir lífeyrissjóða halda áfram að aukast

Hrein eign lífeyrissjóða í lok október sl. var 1.852,3 milljarðar kr. og hækkaði hún um 16,2 miljarða kr. í mánuðinum eða um 0,9%.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að í október hækkaði innlend verðbréfaeign um tæpa 17 milljarða kr í mánuðinum eða 1,4%. Sé miðað við október 2009 hefur hrein eign lífeyrissjóða hækkað um 122 milljarða kr eða 7%.

Vert er að taka fram að enn er nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×