Gríðarleg aukning í útflutningi iðnaðarvara 9. apríl 2010 12:04 Oftast nær er álið langstærsti hluti í flokki útfluttra iðnaðarvara en ljóst er að þessi upphæð er mun hærri en það sem að jafnaði er flutt út af áli í hverjum mánuði.
Gríðarleg aukning varð í útflutningi iðnaðarvara í mars en alls voru fluttar út slíkar vörur fyrir 30,1 milljarða kr. í mánuðinum og er um að ræða aukningu upp á 52% á föstu gengi frá sama mánuði fyrra árs.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um vöruskiptin í mars en þau voru hagstæð um 11,4 milljarða kr. Í Morgunkorninu segir að oftast nær er álið langstærsti hluti í flokki útfluttra iðnaðarvara en ljóst er að þessi upphæð er mun hærri en það sem að jafnaði er flutt út af áli í hverjum mánuði.Frekari sundurliðun á þessum lið verður ekki birt fyrr en í lok mánaðar þegar Hagstofan birtir lokatölur fyrir vöruskiptin í mars. Þá voru fluttar út sjávarafurðir fyrir samtals 20,4 milljarða kr. í marsmánuði sem er aukning um 3,5% á föstu gengi frá sama mánuði fyrra árs.Alls voru fluttar út vörur fyrir 52,8 milljarða kr. í marsmánuði. Þetta er mun meiri útflutningur en sést hefur síðustu mánuði en vöruútflutningur hefur numið að meðaltali 42 milljörðum kr. síðustu 3 mánuði. Um er að ræða aukningu um 29% frá sama mánuði fyrra árs á föstu gengi þegar leiðrétt hefur verið fyrir útflutningi skipa og flugvéla.Vöruinnflutningur var með mesta móti í marsmánuði og nam 41,4 milljarði kr. Þetta er mun meiri innflutningur en hefur verið að meðaltali síðustu 3 mánuði þar á undan en þá voru fluttar inn vörur að meðaltali fyrir 32 milljarða kr. Sé leiðrétt fyrir gengisbreytingum var vöruinnflutningur um 26,5% meiri nú í mars en í sama mánuði í fyrra.Mun meira var flutt inn af mat-og drykkjarvöru eða alls fyrir samtals 4,6 milljarða kr. sem er aukning um 30% á föstu gengi og þá var flutt inn eldsneyti fyrir 5,3 milljarða kr. sem er aukning um 108% á föstu gengi frá því í sama mánuði fyrir ári síðan.Miklar sveiflur eru að jafnaði í innflutningi eldsneytis á milli mánaða en í febrúar var flutt inn eldsneyti fyrir 1,5 milljarð kr. Loks voru fluttar inn fjárfestingarvörur fyrir 10,4 milljarða kr. í mars sem er aukning um 200% frá sama mánuði fyrra árs á föstu gengi.
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira