Gömlu eigendurnir eignast helming á ný 16. desember 2010 06:00 Fyrirhugað er að ÍAV ljúki framkvæmdum við tónlistarhúsið Hörpu í kringum maí á næsta ári. Fréttablaðið/anton
Karl Þráinsson, forstjóri Íslenskra aðalverktaka (ÍAV), og Gunnar Sverrisson framkvæmdastjóri hafa hvor um sig keypt 25 prósenta hlut í ÍAV. Þeir voru meðal aðaleigenda ÍAV sem misstu hlut sinn til kröfuhafa í fjárhagslegri endurskipulagningu í mars. Hinn helminginn á svissneska verktakafyrirtækið Marti Contractors, sem yfirtók verktakahluta ÍAV í mars síðastliðnum. „Forráðamenn Marti Contractors hafa ekki viljað fjarstýra fyrirtækinu frá Sviss. Þeir leggja mikla áherslu á að það sé rekið á íslenskum forsendum og af Íslendingum. Það er á þeim forsendum sem við komum að félaginu," segir Gunnar. Marti vann með ÍAV að gerð Óshlíðarganga og fleiri verkefnum og hafa starfsmenn ÍAV farið utan til að vinna með starfsmönnum Marti. Eftir því sem næst verður komist höfðu eigendur ÍAV frumkvæðið að því að Marti Contractors tæki yfir reksturinn í vor. Samkvæmt tilkynningu ÍAV til Ríkisskattstjóra skipti félagið um kennitölu og tók upp nafnið IP verktakar í júní í fyrra. Á sama tíma settist Bernard Schleich í stól stjórnarformanns fyrir hönd Marti Contractors. Nafni félagsins var breytt aftur í Íslenska aðalverktaka í september á þessu ári þegar hlutafé var aukið um tæpar fjögur hundruð milljónir. Eftir því sem næst verður komist lögðu þeir Gunnar og Karl til hlutaféð. Gunnar segir trúnaðarmál hvað þeir greiddu fyrir helmingshlut í ÍAV. Fjárhagsstaða gamla ÍAV er óljós. Í lánabók Kaupþings sem lekið var á netið kemur fram að skuldbindingar ÍAV og tengdra félaga námu 147,7 milljónum evra, jafnvirði 23 milljarða króna, í lok september 2008. Arion banki tók yfir 82 prósent í félaginu í mars á móti Byr og varð hlutur fyrrverandi eigenda að engu. Viðskiptablaðið greindi frá því í vor að ÍAV og móðurfélag þess hefðu lítið greitt af lánum frá því haustið 2008 og þau safnað miklum vöxtum. Rætt var um það í kringum uppstokkunina að Arion banki gæti þurft að afskrifa hátt í þrettán milljarða króna vegna lána til ÍAV. jab@frettabladid.is
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira