Jólin

Piparkökur með brjóstsykri

Uppskriftin gefur um 100-120 piparkökur.
Uppskriftin gefur um 100-120 piparkökur.

Hnoðað vel og deigið geymt í ísskáp yfir nótt, eða að minnsta kosti í nokkra klukkutíma.

Deigið breitt fremur þunnt út, skornar út viðeigandi piparkökur og skorið úr miðjunni á þeim sem á að setja mola í.

Bakað við um 170 gráður og á blæstri (annars 190 gráður ef ekki blástur).

Best hefur reynst að baka fyrst í um 3-4 mínútur, setja molann í miðjuna á gatinu sem skorið var út og baka áfram í um 3-4 mínútur í viðbót.

Ef molinn er settur strax og bakaður með allan tímann koma loftbólur í „glerið" og það verður ekki eins fallegt.

500 gr. hveiti

280 gr. sykur

2 tsk. natron

3 tsk kanill

1 1/2 tsk negull

1 1/2 tsk engifer

1/2 tsk pipar

180 gr. smjör

1 dl síróp

1 dl sterkt kaffi (Nescafé virkar vel)

Kóngabrjóstsykur

Ávaxtabrjóstsykur






×