Starfsmönnum SÍ óheimilt að þiggja gjafir eða boðsferðir 3. febrúar 2010 08:52
Samkvæmt starfs- og siðareglum Seðlabanka Íslands (SÍ) er starfsmönnum bankans óheimilt að þiggja gjafir og boðsferðir. Eina undantekningin er ef ferðirnar eru taldar hafa upplýsingagildi fyrir bankann en þá greiðir bankinn kostnaðinn við ferðina.Eins og fram hefur komið í fréttum þáði Sigurður Sturla Pálsson framkvæmdarstjóri alþjóða- og markaðssviðs SÍ boðsferð í tvígang með einkaþotu sem hann taldi vera í eigu Milestone.Í þeim kafla fyrrgreindra reglna sem fjallar um tengsl og samskipti við aðila utan bankans segir orðrétt í þriðju grein:„Starfsmönnum er óheimilt að þiggja gjafir af viðskiptavinum eða væntanlegum viðskiptavinum séu þær fjárhagslega verðmætar. Undanteknar eru jóla- og afmæliskveðjur, sem eru að fjárhagslegu verðmæti innan marka sem teljast algeng í slíkum tilvikum eða ef um er að ræða persónuleg tengsl sem ekki verða rakin til viðskipta við bankann.Starfsmönnum er óheimilt að þiggja boðsferðir af viðskiptavinum eða væntanlegum viðskiptavinum, innanlands sem utan, hvort sem um er að ræða skemmtiferðir eða kynnisferðir vegna einstakra fyrirtækja. Undantekningar eru ferðir sem talið er að hafi upplýsingagildi fyrir bankann eða geri bankann hæfari til að sinna hlutverki sínu. Í slíkum tilvikum skal yfirmaður meta hvort svo sé, enda greiði bankinn kostnað við ferðina nema annað sé sérstaklega ákveðið."Í samtali við fréttastofu þann 1. febrúar s.l. segist Sturla tvisvar hafa flogið með þotunni, í bæði skiptin var hann á leið í frí með Steingrími Wernersyni vini sínum. Hann segir að Steingrímur hafi tjáð sér á þessum tíma að þotan hafi verið í eigu þeirra Wernersbræðra. Hann vill ekki fara nánar út í hvert þeir flugu en segir þá eyða miklum frítíma saman. Sigurður segist ekki sjá neitt athugavert við að hann hafi flogið með þotunni.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Sjá meira