Viðskipti innlent

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 2,7% milli mánaða

Vísitala fyrir stóriðju var 231,9 stig, lækkaði um 8,0% (-3,0%).
Vísitala fyrir stóriðju var 231,9 stig, lækkaði um 8,0% (-3,0%).
Vísitala framleiðsluverðs í mars 2010 var 196,5 stig og lækkaði um 2,7% frá febrúar 2010. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 229,4 stig, sem er hækkun um 0,7% (vísitöluáhrif 0,3%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 231,9 stig, lækkaði um 8,0% (-3,0%).

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,5% (-0,1%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 0,8% (0,1%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,5% (0,1%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 3,7% (-2,8%).

Miðað við mars 2009 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 28,4% en verðvísitala sjávarafurða um 22,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 62,8% en matvælaverð hefur hækkað um 2,9%.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×