Viðskipti innlent

Greining Íslandsbanka segir fjárlagafrumvarpið ekki koma á óvart

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Steingrímur J. Sigfússon kynnti fjárlagafrumvarpið á föstudag. Mynd/ ÞÞ.
Steingrímur J. Sigfússon kynnti fjárlagafrumvarpið á föstudag. Mynd/ ÞÞ.
Greining Íslandsbanka segir að fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár sé í stórum dráttum í takti við það sem búast mátti við. Til þess að tryggja að ríkisfjármálin verði aftur sjálfbær verði farin blönduð leið aukinnar tekjuöflunar og samdráttar í útgjöldum en að þessu sinni verði þó þungi aðgerðanna að mestu á útgjaldahliðinni.

Eins og fram hefur komið er gert ráð fyrir 36,4 milljarða króna halla á rekstri ríkissjóðs sem er rúmlega 38 milljarða króna afkomubati frá fyrra ári. Áformað er að tekjur ríkissjóðs á næsta ári verði 477,4 milljarðar króna. sem er tæplega 7 milljarða króna aukning frá áætlun ársins 2010.

Fram kemur í frumvarpinu að ekki sé um að ræða teljandi breytingar á helstu tekjustofnum heldur sé borið niður með sértækari hætti í öðrum minni tekjuliðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×