Telur ólíklegt að Fitch lækki lánshæfiseinkunn Íslands 20. júlí 2010 08:33
Greining Íslandabanka telur ólíklegt að matsfyrirtækið Fitch Ratings muni lækka lánshæfiseinkunn Íslands þrátt fyrir ummæli Paul Rawkins, aðstoðarframkvæmdastjóra Fitch í London, í vikunni um neikvæð áhrif gengisdóms Hæstaréttar á stöðugleika íslenska fjármálakerfisins.Í Morgunkorni greiningarinnar segir að nýlegur dómur Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggða lána mun líklega hafa neikvæð áhrif á stöðugleika fjármálakerfisins hér á landi, fjármál hins opinbera sem og þá viðleitni yfirvalda að draga úr gjaldeyrishöftum. Þetta er mat Paul Rawkins, aðstoðarframkvæmdastjóra greiningarteymis lánshæfismatsfyrirtækisins Fitch í Lundúnum, en viðtal við hann var birt á fréttaveitunni Bloomberg í gærmorgun.Að hans mati er líklegt að dómurinn komi til með að seinka efnahagslegum bata hér á landi. Af ummælum hans að dæma er það mat Fitch að dómurinn hefur ekki góð áhrif á lánshæfi ríkissjóðs. Kemur það ekki á óvart enda hefur óvissan í efnahagsmálum aukist með tilkomu dómsins. Ekkert hefur heyrst frá matsfyrirtækinu Fitch fyrr en nú frá því það lækkaði einkunnir ríkissjóðs fyrir erlendar skuldbindingar niður í spákaupmennskuflokk, þ.e. BB+, í kjölfar ákvörðun forseta Íslands um að vísa Icesave-samningnum til þjóðaratkvæðagreiðslu sem átti sér stað í byrjun janúar.„Þrátt fyrir ummælin Rawkins sem greint er frá hér á ofan eigum við ekki von á að fyrirtækið komi til með að breyta lánshæfiseinkunnum ríkissjóðs í bráð og jafnvel þrátt fyrir að einkunnir ríkissjóðs eru á neikvæðum horfum í bókum fyrirtækisins," segir í Morgunkorninu.„Í raun hefur margt jákvætt áunnist hér á landi frá því fyrirtækið lækkaði einkunnir ríkissjóðs. Má hér nefna að erlenda skuldastaða þjóðarbúsins hefur batnað, aðgengi landsins að erlendu lánsfé hefur aukist, verðbólgan hefur hjaðnað og gengi krónunnar hefur styrkst.Teljum við því ólíklegt að Fitch lækki lánshæfiseinkunn ríkissjóðs enn frekar nema verulegt bakslag verði í efnahagsframvindunni og þeirri áætlun sem ríkisstjórnin og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vinna nú eftir við uppbyggingu efnahagslífsins."
Mest lesið Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Sjá meira