Miklir fjármunir lagðir í rannsóknir á makríl 26. febrúar 2010 10:28
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa lagt verulega fjármuni í rannsóknir og þróun veiða á makríl á undanförnum árum um leið og þau hafa smám saman verið að ná tökum á veiðum og vinnslu þessarar mikilvægu uppsjávartegundar. Þetta kom fram á fjölsóttri málstofu um um veiðar og vinnslu á makríl sem sjávarútvegsráðuneytið stóð fyrir í vikunni.Fjallað er um málið á vefsíðu LÍÚ. Þar er greint frá því að Steinar Ingi Matthíasson, skrifstofustjóri ráðuneytisins, rakti í erindi sínu baráttu Íslands fyrir viðurkenningu sem fullgilt strandríki í viðræðum um heildarstjórn veiða úr makrílstofninum. Hann sagði þjóðréttarlega stöðu Íslands ótvíræða í þessu samhengi og sagði m.a.: „Veiðigögn eru sterkustu rök okkar sem strandríkis." Ísland hefur þekkst boð um þáttöku í strandríkjafundi um makrílveiðar í næsta mánuði.Otto James-Olsen, fagstjóri uppsjávarveiða hjá Samtökum fiskvinnslustöðva í Noregi, var sérstakur gestur málstofunnar. Hann rakti samskipti Norðmanna og ESB um makrílveiðar en sem kunnugt er hafa þessir aðilar tekist hart á um veiðiréttindi. Hann kom inn á hugsanlega þátttöku Íslands í stjórn veiðanna og sagði að sú aflahlutdeild, sem Ísland kæmi til með að fá ef samningar tækjust, yrði tekin af þeim 572.000 tonna heildarkvóta sem ákveðinn hefði verið fyrir árið 2010.Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjasatofnasviðs Hafrannsóknastofnunarinnar, fór í mjög fróðlegu erindi yfir þær breytingar sem orðið hafa á göngu makríls í kringum Ísland. Hann sagði umhverfisþætti stýra þessum göngubreytingum, einkum hita- og seltustig sjávar. Þorsteinn sagði að líffræðilega væri um að ræða þrjá makrílstofna sem litið væri á sem einn er kæmi að stjórnun veiðanna.Mikill fróðleikur um þróun makrílvinnslunnar kom fram í erindi Gunnþórs Ingvasonar, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað. Í erindi hans kom fram að makríll væri við Ísland í þrjá mánuði og aðeins veiðanlegur í tvo ef ná ætti sem mstum verðmætum úr aflanum. Gunnþór taldi skipulag veiðanna í fyrra hafa valdið því að 4,5 milljörðum króna minna fékkst fyrir afurðirnar en ef útgerðir hefðu getað stýrt veiðunum sjálfar.Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hugins hf. í Vestmannaeyjum, fór yfir reynslu fyrirtækisins í makrílveiðum en fyrirtækið hefur verið í fararbroddi í tilraunaveiðum á nýjum nytjastofnum við landið, m.a. gulldeplu á síðasta ári. Hann sagði dýrmæta reynslu hafa áunnist en benti á að menn væru rétt að byrja að læra á útbreiðslu og hegðan makrílsins. Páll tók undir orð Gunnþórs um stjórn makrílveiðanna í fyrra og sagði þær hafa verið „sóun á verðmætum."
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira