Bílaleigan Alp sett í opið söluferli 25. mars 2010 15:42
Bevís ehf. hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á 100% hlut í Alp ehf., sem rekur eina af stærstu bílaleigum Íslands undir vörumerkjum Avis og Budget. Í tilkynningu segir að Bílaleigan Alp var stofnuð árið 1980 og rekur í dag eina af stærstu bílaleigum Íslands undir alþjóðlegum vörumerkjum Avis og Budget. Markaðshlutdeild félagsins var áætluð um 25% á árinu 2009. Félagið hefur aðsetur í Reykjavík og Keflavík, ásamt því að reka leigustöðvar víðsvegar um landið. Bílafloti félagsins í dag stendur í um 800 bílum, en áætlanir gera ráð fyrir að bílaflotinn verði yfir 1.150 bílar á háannatíma í sumar. Félagið er í dag að fullu í eigu Bevís ehf.. Söluferlið verður opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði til þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti, einstaklingum sem hafa verulegan fjárhagslegan styrk og viðeigandi þekkingu, auk fyrirtækja sem höfðu eiginfjárstöðu sem var hærri en sem nemur 300 milljónum kr. í árslok 2009. Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu í þeim tilvikum þegar fyrir hendi eru lagalegar eða annarskonar takmarkanir á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna. Áhugasamir fjárfestar þurfa að fylla út trúnaðaryfirlýsingu ásamt því að leggja fram nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem staðfesta að ofangreind skilyrði séu uppfyllt. Framangreindu skal skilað til Fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka. Sölugögn verða afhent á tímabilinu frá 29. mars til og með 12. apríl með rafrænum hætti á netfang sem fjárfestar tilgreina í trúnaðaryfirlýsingu. Gert er ráð fyrir að tilboðum með sérstaklega tilgreindum fyrirvörum sé skilað til Íslandsbanka, fimmtudaginn 15. apríl 2010. Skuldbindandi tilboð verða opnuð í viðurvist óháðs aðila.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira