Forstjóri Capacent segir yfirtökuna vera kennitöluflakk Höskuldur Kári Schram skrifar 16. september 2010 12:15
Forstjóri Capacent á Íslandi segir að yfirtaka starfsmanna félagsins á rekstri þess sé dæmi um kennitöluflakk. Íslandsbanki hafi þvingað starfsmenn til að taka yfir rekstur félagsins en bankinn vildi ekki fallast á tilboð um niðurfærslu lána. Ný kennitala hefur verið stofnuð í kringum rekstur félagsins en ekki stendur til að segja upp starfsfólki.Fréttablaðið greindi frá því í morgun að hópur starfsmanna Capacent á íslandi hafi tekið yfir rekstur félagsins.Ingvi Þór Elliðason, forstjóri Capacent, segir að ákveðið hafi verið að grípa til þessara aðgerðar eftir að ekki náðist samkomulag við Íslandsbanka um niðurfærslu á erlendu láni. Félagið tók 700 milljóna króna lán í erlendri mynt árið 2007 en það hefur hækkað verulega síðan þá.„Staðan var orðin þannig að þetta var orðið óraunhæft og ógjörningur fyrir okkur að standa í skilum með þessi lán. Svo vorum við búnir að vera í viðræðum við bankann í 18 til 20 mánuði og leita leiða til að semja um lækkun á þessu láni gegn því að koma inn með nýtt fé en þær viðræður skiluðu ekki árangri því miður," segir Ingvi.Ingvi segir að bankinn hafi í raun þvingað starfsmenn til að grípa til þessara aðgerða. Markmiðið sé að bjarga verðmætum, þar á meðal störfum, en hið nýja félag tekur yfir allar skuldbindingar gagnvart starfsmönnum og viðskiptavinum. Ekki stendur til að segja upp starfsfólki.Er bankinn búinn að fallast á þessar ráðstafanir? „ Ja, þetta var í raun sú leið sem bankinn þvingar okkur í. Þanig að við fengum bara aðila til að meta þessa eign og það er einu sinni þannig í svona fyrirtæki að við erum ekki með fasteignir eða efnislegar eignir þannig að verðmætin eru fyrst og fremst í höfðinu á fólki," segir Ingvi.Er þetta ekki bara hið sígilda kennitöluflakk? „Jú það má segja. Auðvitað erum við að skipta um kennitölu en ég vil ekki meina að þetta sé hið sígilda. Við erum ekki að skila eftir okkur birgja eða viðskiptamenn í sárum.. Það er bara þetta eina lán sem að situr eftir og allt annað í skilum. Skattar og gjöld og reikningar sem við höfum verið að stofna til að undanförnu," segir Ingvi.
Mest lesið „Ekki mistök“ að brauð með engu kostaði tvö þúsund krónur Neytendur Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Viðskipti innlent Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Viðskipti erlent Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Viðskipti innlent Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Viðskipti innlent Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Viðskipti innlent Isavia braut lög á Keflavíkurflugvelli Neytendur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Viðskipti innlent Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Viðskipti erlent Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Fleiri fréttir Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Búast við tveggja milljarða tapi Samruninn muni taka langan tíma Orri til liðs við Íslandsbanka Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair Auður leiðir nýja samsteypu á íslenskum markaði Virði Icelandair hrapar eftir uppgjör „Við erum alls ekki í nokkru stríði“ Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Sjá meira
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun