Hækkun á gengi krónunnar eru rök fyrir vaxtalækkuninni 17. mars 2010 11:00
Hækkun viðskiptavegins meðalgengis krónunnar án nokkurra inngripa Seðlabanka á gjaldeyrismarkaði frá síðasta peningastefnufundi eru rök fyrir vaxtalækkun nú. Í ljósi ytra umhverfis sem einkennist af háu áhættuálagi á skuldabréf fjölda ríkissjóða og áframhaldandi óvissu um aðgengi Íslands að erlendum fjármálamörkuðum, ber gengisþróunin vitni um virkni gjaldeyrishaftanna og hagstæða þróun viðskiptajafnaðar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankans en hún lækkaði vexti bankans um 0,5 prósentustig í morgun.Í yfirlýsingunni segir að verðbólga jókst aftur í febrúar, eftir að hafa hjaðnað í desember og janúar, og mældist 7,3%, eða 5,9% ef áhrif hærri neysluskatta eru frátalin. Aukin verðbólga var í meginatriðum fyrirséð og breytir ekki í grundvallaratriðum spánni sem Seðlabankinn birti í janúar. Gert er ráð fyrir að verðbólga aukist einnig í mars vegna óhagstæðra grunnáhrifa, en að undirliggjandi verðbólga hjaðni eigi að síður að markmiðinu seint á árinu.Hátt skuldatryggingarálag og óhagstæðar horfur um lánshæfismat ríkissjóðs, er tengjast óvissu um aðgang Íslands að alþjóðlegum fjármálamörkuðum, eru rök fyrir tiltölulega varfærnum breytingum, í ljósi hugsanlegra neikvæðra áhrifa á gengi krónunnar í framtíðinni. Tafir á lausn deilunnar um bætur vegna innstæðna í erlendum útibúum Landsbankans leiddu til lækkunar lánshæfismats eins hinna alþjóðlegu lánshæfisfyrirtækja og tefja enn aðra endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyris¬sjóðsins og fjármögnun tengda henni. Að því gefnu að gjaldeyrishöftin haldi mun töfin ekki hafa umtalsverð skammtímaáhrif á gengi krónunnar. Hins vegar væri áhættusamt að afnema gjaldeyrishöftin eða lækka vexti í stórum skrefum á meðan lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Norðurlöndum fást ekki, eða aðgangur að alþjóðlegum fjármálamörkuðum á viðunandi kjörum er ekki greiður.Haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðnar eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar. Svigrúm peningastefnunefndarinnar til vaxtalækkunar verður þó takmarkað meðan veruleg óvissa ríkir um aðgengi Íslands að alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Eins og ávallt er nefndin reiðubúin til að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt markmiði til lengri tíma litið, að því er segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar.
Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Sjá meira