Viðskipti innlent

FME vill að fyrirtæki greiði í samræmi við dóm Hæstaréttar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Einar Hugi segir að það verði fróðlegt að sjá hvernig lánastofnanirnar bregðist við um næstu mánaðamót.
Einar Hugi segir að það verði fróðlegt að sjá hvernig lánastofnanirnar bregðist við um næstu mánaðamót.
Fjármálaeftirlitið beindi þeim tilmælum til lánastofnana á dögunum að meðferð fjármögnunarleigusamninga verði í samræmi við tilmæli sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn gáfu út 30. júní síðastliðinn, eftir að dómur Hæstaréttar í gengistryggingarmálinu var kveðinn upp.

Lánastofnanirnar hafa hins vegar hingað til vísað því að bug að dómurinn ætti við um fjármögnunarleigusamninga, en það eru þeir samningar sem mörg fyrirtæki nýttu til að fjármagna starfsemi sína. Lánastofnanirnar hafa því hingað til innheimt vexti og afborganir frá fyrirtækjum með sama hætti og þeir gerðu áður en dómur var kveðinn upp, en ekki lægstu óverðtryggðu vexti Seðlabanka Íslands á hverjum tíma út frá upphaflegum höfuðstól.

Einar Hugi Bjarnason, lögmaður hjá Ergo lögmönnum, hefur stefnt Lýsingu fyrir hönd Smákrana ehf. vegna samnings sem fyrirtækið gerði til að fjármagna kaup á krana árið 2007. Telja eigendur Smákrana að þeir hafi ofgreitt til Lýsingar. Einar hefur sent bréf á Lýsingu og skorað á þá að gera upp í samræmi við dóm Hæstaréttar frá 16. júní en þeirri kröfu hefur Lýsing hafnað. Málið var þingfest í byrjun september. Eftir það sendi FME dreifibréfið sem Einar Hugi segir að staðfesti í raun málatilbúnað Smákrana.

„Það verður fróðlegt að sjá hvort og þá hvernig fyrirtækin bregðast við þessum tilmælum Fjármálaeftirlitsins fyrir næstu mánaðamót," segir Einar Hugi. Hann segir málið varða gríðarlega hagsmuni. Það muni velta á þessari niðurstöðu hvort mörg fyrirtæki geti haldið áfram rekstri eða hvort þau fari í þrot.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×