Viðskipti innlent

Vöruskiptin hagstæð um rúma 11 milljarða í september

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir september 2010 var útflutningur tæpir 50,8 milljarðar króna og innflutningur 39,6 milljarðar króna.

Vöruskiptin í september voru því hagstæð um tæpa 11,2 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum, að því er segir á vefsíðu Hagstofunnar.

Þetta er mun meiri afgangur af vöruskiptunum en var í september í fyrra þegar þau voru hagstæð um 3 milljarða kr.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×