Athyglisvert að sjá hvaða stefnu íbúðamarkaðurinn tekur 2. nóvember 2010 11:32 „
Mjög athyglisvert verður að fylgjast með hvaða stefnu íbúðamarkaðurinn mun taka næstu mánuði og hvort framhald verði á verðhækkunum og aukinni veltu." Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um fasteignamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu.Samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár Íslands voru samtals gerðir 276 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í októbermánuði. Þetta eru heldur færri samningar heldur en gerðir voru í septembermánuði síðastliðnum en þá voru samningarnir fjórðungi fleiri og voru 347 talsins. Reyndar var óvenju mikið um að vera á íbúðamarkaði í september og voru samningar þann mánuðinn fleiri heldur en verið hefur síðan í mars 2008. Frá hruni hafa verið gerðir að meðaltali 180 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í hverjum mánuði. Þrátt fyrir að veltan í október hafi ekki jafnast á við það sem var í metmánuðinum þar á undan er engu að síður um mikla veltu að ræða miðað við hvernig ástandið hefur verið undanfarin misseri. Þetta eru til að mynda 30% fleiri samningar en í sama mánuði fyrir ári síðan þegar samtals 212 kaupsamningum var þinglýst. Þá er þetta langt yfir þeim fjölda samninga sem voru gerðir á mánuði á fyrri helmingi þessa árs, en þá voru að meðaltali gerðir 200 samningar á mánuði. Heildarvelta þeirra samninga sem gerðir voru í október nam 7,6 mö kr. sem nemur því að meðalupphæð á hvern kaupsamning hafi verið 27,4 m. kr. Allt virðist því benda til þess að lífsmark sé að kvikna á íbúðamarkaði nú á haustdögum. „Þá hefur íbúðaverð einnig hækkað nú í haust en samkvæmt tölum Hagstofunnar hækkaði íbúðaverð um 1% í október frá fyrri mánuði á landinu öllu og samkvæmt mælingum Þjóðskrár Íslands hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu um 0,4% í september frá fyrri mánuði. Mjög athyglisvert verður að fylgjast með hvaða stefnu íbúðamarkaðurinn mun taka næstu mánuði og hvort framhald verði á verðhækkunum og aukinni veltu," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Framleiðendur verða að vera á tánum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira