Kauphöllin íhugar að kæra Bakkavör til FME 22. mars 2010 11:23
Komi til þess að Bakkavör Group hf. verði breytt úr hlutafélagi í einkahlutafélag, án þess að hlutabréf þess hafi áður verið tekin úr viðskiptum í kauphöll samkvæmt þeim lögum sem um það gilda, lítur Kauphöllin svo á að um sé að ræða brot á samningi félagsins við Kauphöllina. Kauphöllin mun tilkynna Fjármálaeftirlitinu (FME) um slíkt brot í samræmi við þá lagaskyldu sem á henni hvílir í þeim efnum samkvæmt lögum um kauphallir. Þetta kemur fram í tilkynningu um málið. Þar segir að þann 5. mars. sl. birti Bakkavör Group hf. opinberlega tilkynningu um hluthafafund félagsins sem haldinn verður 26. mars 2010. Í 2. lið dagskrár hluthafafundarins er gerð „tillaga um að breyta félaginu í einkahlutafélag í samræmi við ákvæði... laga... um hlutafélög og afskrá félagið í kjölfarið úr Kauphöllinni Um félög sem fengið hafa hlutabréf sín tekin til viðskipta í kauphöll gilda sérstakar reglur sem leggja slíkum félögum á herðar ýmsar skyldur umfram önnur félög. Þær skyldur sem hér um ræðir eru samkvæmt samningi Kauphallarinnar og félagsins, reglum Kauphallarinnar sem félagið hefur undirgengist, lögum um kauphallir, sem og öðrum lögum og reglum á sviði fjármálamarkaðar. Þau lög sem hér er vitnað til eru sérlög sem ganga framar almennum reglum laga um hlutafélög. Þegar félag er orðið einkahlutafélag eru hlutir þess ekki lengur tækir til viðskipta í kauphöll. Því telur Kauphölllin að breyting Bakkavarar Group hf. úr hlutafélagi í einkahlutafélag geti ekki átt sér stað fyrr en að lokinni töku hlutabréfa félagsins úr viðskiptum í kauphöll. Samkvæmt lögum um kauphallir er það Kauphöllin sem ákveður hvort og þá hvenær hlutabréf útgefanda verða tekin úr viðskiptum, sbr. einnig grein 1.1.27 í reglum Kauphallarinar fyrir útgefendur fjármálagerninga.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Sjá meira