Tugir fyrrverandi stjórnenda banka fá bakreikninga Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 2. maí 2010 18:29
Rúmlega 30 fyrrverandi stjórnendur Glitnis og Kaupþings hafa fengið bakreikning frá skattayfirvöldum vegna söluréttasamninga. Krefjast skattayfirvöld að samningarnir verði skattlagðir sem launatekjur en ekki fjármagnstekjur. Dæmi eru um að menn hafi hagnast um hálfan milljarð á samningunum. Skattyfirvöld hafa um nokkurt skeið skoðað söluréttarsamninga sem starfsmönnum gömlu bankanna bauðst. Vilja þau meina að slíka samninga beri að skattleggja sem launatekjur en ekki fjármagnstekjur. Söluréttarsamningar virkuðu þannig að starfsmönnum gafst færi á að kaupa hlutabréf með söluréttartryggingu fyrirtækisins. Ef bréfin hækkuðu í verði gátu þeir valið að eiga bréfin eða selja þau en ef þau lækkuðu gátu þeir gengið frá samningnum sér að kostnaðarlausu. Stjórnendurnir greiddu 10% fjármagnstekjuskatt þegar bréfin voru seld en greiddu ekkert vegna söluréttarins. Þessu vill Ríkisskattstjóri breyta og hefur þegar unnið málið fyrir yfirskattanefnd og héraðsdómi. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa nú rúmlega 30 fyrrverandi stjórnendur Glitnis og Kaupþings fengið endurákvörðun opinberra gjalda frá skattyfirvöldum vegna samninganna. Meðal þeirra eru fyrrverandi forstjóri og stjórnarformaður Kaupþings, Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson og fyrrverandi forstjóri Glitnis, Bjarni Ármannsson. Málin munu þó vera misjafnlega langt á veg komin. Hæstu fjárhæðirnar voru hjá Kaupþingi en dæmi eru um að menn hafi hagnast um allt að fimm hundruð milljónir króna. Í heildina nemur tekjuskattsstofninn nokkrum milljörðum króna. Enn er unnið að því að greina söluréttarsamninga í öðrum fyrirtækjum svo það má búast við að stjórnendur annarra fyrirtækja muni innan tíðar fá bréf frá Ríkisskattstjóra inn um lúguna.
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira